25.5.2009 | 16:14
Mikið verk óunnið áður en sótt verður um
Tillaga, um að hefja skuli aðildarviðræður við Evrópusambandið, var lögð fram á Alþingi í dag af Össuri, grínara, og vegna eðli og alvarleika þessa máls, er rétt að birta tillöguna og athugasemdir við hana hér:
Þskj. 38 38. mál.
um aðildarumsókn að Evrópusambandinu.
(Lögð fyrir Alþingi á 137. löggjafarþingi 2009.)
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild að Evrópusambandinu og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning.
Tillaga um aðildarumsókn að Evrópusambandinu er lögð fram til þess að íslenska þjóðin fái tækifæri til að hafna eða samþykkja samning um aðild að sambandinu þegar hann liggur fyrir.
Umsókn að ESB jafngildir þannig ekki aðild enda er það íslensku þjóðarinnar að komast að endanlegri niðurstöðu hvað hana varðar. Jafnframt verði lagt fram frumvarp til laga um þjóðaratkvæðagreiðslur um mikilvæg mál sem ríkisstjórn eða Alþingi ákveða að leggja fyrir þjóðina.
Víðtækt samráð verður haft við hagsmunaaðila um samningsmarkmið fyrir viðræðurnar á ýmsum sviðum, svo sem sjávarútvegs-, landbúnaðar- og byggðamála, á sviði almannaþjónustu, umhverfis- og jafnréttismála og gjaldmiðilsmála, og leitast við að ná sem breiðastri samstöðu um umræðugrundvöll viðræðnanna. Skoðað verður hvort unnt sé að ná fram samstarfi í gjaldmiðilsmálum samhliða viðræðum um hugsanlega aðild til að styðja við gengi krónunnar. Áhersla er lögð á opið og gagnsætt ferli og reglubundna upplýsingagjöf til almennings og hagsmunaaðila.
Fagleg viðræðunefnd við ESB verður skipuð af ríkisstjórn Íslands. Henni til fulltingis verður breiður samráðshópur fulltrúa hagsmunaaðila sem nefndin leitar ráðgjafar hjá, og upplýsir jafnóðum um framvindu viðræðna. Ísland sem Evrópuþjóð vill leggja sitt af mörkum við uppbyggingu lýðræðislegrar Evrópu sem grundvallast á félagslegu réttlæti, jafnrétti og virðingu fyrir manngildi og umhverfi. Hlutverk Evrópu er að vera hornsteinn mannréttinda í heiminum og ýta undir stöðugleika, sjálfbæra þróun, réttlæti og velmegun um allan heim.
Málsaðilar áskilja sér rétt til að mæla með eða leggjast gegn samningnum þegar hann liggur fyrir enda eru settir margvíslegir fyrirvarar við hugsanlegan stuðning við málið.
Meðal grundvallarhagsmuna Íslands eru:
* Að tryggja forræði þjóðarinnar yfir vatns- og orkuauðlindum og ráðstöfun þeirra.
* Að tryggja forræði þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni, sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar og hlutdeild í deilistofnum og eins víðtækt forsvar í hagsmunagæslu í sjávarútvegi í alþjóðasamningum og hægt er.
* Að tryggja öflugan íslenskan landbúnað á grundvelli fæðuöryggis og matvælaöryggis.
* Að tryggja lýðræðislegan rétt til að stýra almannaþjónustu á félagslegum forsendum.
* Að standa vörð um réttindi launafólks og vinnurétt.
* Að ná fram hagstæðu og vaxtarhvetjandi samkeppnis- og starfsumhverfi fyrir atvinnulíf á Íslandi um leið og sérstöðu vegna sérstakra aðstæðna er gætt.
Stefnt er að því að Alþingi setji á fót sérstaka Evrópunefnd Alþingis með fulltrúum allra stjórnmálaflokka er fari með samskipti við viðræðunefnd vegna ESB.
Nokkrar setningar í athugasemdunum eru feitletraðar hér til að sýna að jafnvel grínarinn Össur og ríkisvinnuflokkurinn gera sér grein fyrir því að gífurleg vinna er framundan við að móta samningsmarkmið Íslands í fyrirhuguðum viðræðum.
Samningsmarkmiðin verða ekki tilbúin fyrr en eftir marga mánuði og því hlýtur það að vera brandari (lélegur) að leggja til að sótt verði um aðild og síðan verði farið að leggja niður fyrir sér um hvað á að semja. Það hljóta allir að sjá, að slíkt væri alveg arfavitlaus vinnubrögð og stækkunarstjóri ESB hlyti að hlæja sig máttlausan við móttöku umsóknarinnar. Hvað yrði sagt, ef umsóknin yrði send og síðan kæmust menn ekki að samkomulagi um samningsmarkmiðin?
Ef þannig færi, myndu fleiri hlæja en stækkunarstjórinn.
ESB-tillaga lögð fram á þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég held að Vinstri Græn og Sjálfstæðisflokkur séu eina Ríkisstjórnarúrræðið í þessari stöðu.
Samfylkingin virðist komin í hlutverk þeirra sem drápu Snorra Sturluson á Sturlungaöld af því að hann vildi ekki selja Ísland í hendur Noregskonungs. Það er ekki hægt fyrir Íslenska fullveldissinna að vinna með slíkum flokk, sama hvar þú stendur á vinstri-hægri skalanum.
Vilhelmina af Ugglas, 25.5.2009 kl. 19:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.