28.1.2016 | 17:01
Ótrúlegt rugl útrásarvíkings og Glitnis rétt fyrir hrun
Enn eru að falla dómar vegna ýmissa einkennilegra og ótrúlegra gerninga sem framkvæmdir voru á bóluárunum fyrir hrun. Sum þessara mála eru svo ótrúlega vitlaus að erfitt er að trúa því að menn sem þóttust vera einhverjir mestu viðskiptasnillingar veraldarinnar hafi í rauninni ekki haft meira viðskiptavit en fram hefur komið í hverju málinu á eftir öðru.
Hæstiréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms um að slitabúi Glitnis beri að taka á sig tveggja milljarða ábyrgð á kappakstursævintýri Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, en hann var í forsvari fyrir ýmis útrásarfyrirtæki og fyrirtækjafléttur utanlands og innan og réð þar á meðal yfir meirihluta hlutafjár í Glitni.
Í fréttinni af málinu segir m.a: "Þann 26. ágúst 2008 gerði Glitnir samning við Sport Investment (SI), Baug Group og Jón Ásgeir um að Glitnir myndi veita ábyrgð annars vegar í tengslum við samning um kaup SI á 10 % hlutafjár í Williams Grand Prix Engineering, sem rekur kappaksturslið í tengslum við kappaksturskeppnina Formúlu 1, og hins vegar vegna styrktarsamnings milli Williams og SI og Jóns Ásgeirs. Samdægurs gaf Glitnir út yfirlýsingu um umrædda ábyrgð til Williams."
Þetta rugl er framkvæmt tæpum einum og hálfum mánuði áður fyrir bankahrunið og Glitnir hrundi fyrstur íslensku bankanna og með ólíkindum að bankinn og helstu stjórnendur hans skuli hafa staðið í öðru eins fjármálasukki og þarna ræðir um á sama tíma og undirbúningur Neyðarlaganna var kominn á fullt skrið.
Þetta er aðeins eitt dæmið enn um hversu gjörsamlega svokallaðir útrásarvíkingar og stjórnendur bankanna, sem reyndar voru í mörgum tilfellum sömu mennirnir, hafa verið gjörsneyddir allri tilfinningu fyrir vitrænum viðskiptum.
Viðurkennir tveggja milljarða kröfu á Glitni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég hef verið að velta því fyrir mér, er Kári Stefánsson talinn í hópi útrásarvíkingana?
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 28.1.2016 kl. 18:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.