10.8.2014 | 18:12
Íslendingar henda mat frekar en að gefa hann
Alkunna er að magir kaupa alls ekki matvöru þegar fer að nálgast dagsetninguna sem merk er á umbúðirnar sem "best fyrir" og jafnvel henda allri vöru á heimilinu sem komin er að þessari dagsetningu.
Flest allar vörur endast langt fram yfir þessa "best fyrir" dagsetningu, að ekki sé minnst á dagsetninguna sem segir til um "síðasta söludag" og þrátt fyrir það eru ótrúlega margir sem forðast slíkar dagsetningar eins og heitan eld.
Frakkar íhuga að setja lög sem skyldar verslanir til að gefa allar matvörur sem seljast ekki fyrir þessar umræddu og skelfilegu dagsetningar til góðgerðarstofnana og feta þannig í fótspor Belga, sem settu slík lög í vor. Er þetta auðvitað gert til að minnka það gríðarlega magn fullkomlega neysluhæfrar matvöru sem lendir á sorphaugum heimsins, engum til gagns nema þá helst rottum og öðrum álíka geðslegum kvikindum.
Fyrir nokkrum árum útdeildu Heimilishjálp Íslands, Mæðrastyrksnefnd og slík samtök matvöru sem komin var að "síðasta söludegi" til sinna skjólstæðinga og ekki vitað til þess að nokkrum manni hafi orðið meint af, enda endast flestar vörur nokkuð langt fram yfir slíka dagsetningu eins og lagasetning Belga og Frakka ber glöggan vott um.
Ekki þarf að orðlengja það, að hér á landi varð allt vitlaust út af þessum matarúthlutunum sem þóttu engum bjóðandi og var slíkt að lokum bannað til að friða hina íslensku þjóð, sem virtist almennt verða óglatt við tilhugsunina eina um þessar "útrunnu" matvörur.
Fróðlegt verður að sjá viðbrögðin hérlendis þegar og ef tilskipun kemur frá ESB um lagasetningu í takt við þá belgísku.
Verslanir mega ekki henda mat | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 1146725
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.