4.4.2011 | 16:51
Vandamál veraldarinnar leyst á kostnað Íslendinga?
Guardian fjallar í dag um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort veita skuli ríkisábyrgð á kröfur Breta og Hollendinga á hendur Tryggingasjóði innistæðueigenda og fjárfesta, með tilheyrandi vaxtakostnaði upp á tugi milljarða sem lenda myndi á íslenskum skattgreiðendum, fyrir utan áhættu á tuga- eða hundraðamilljarða viðbótargreiðslum vegna höfuðstóls.
Blaðið segir stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi naga á sér neglurnar í ótta sínum um að íslenskir kjósendur sýni þá skynsemi að fella lögin í kosningunum, enda vilja þau síst af öllu að málið fari fyrir EFTAdómstólinn, þar sem líklegasta niðurstaðan yrði sigur Íslendinga, enda engin ESBlög sem geri ráð fyrir slíkum ríkisábygðum. Ef einhvern tíma og einhversstaðar hefði verið gert ráð fyrir ábyrgð skattgreiðenda á tryggingasjóðum, þá þyrfti auðvitað ekki að neyða Íslendinga til að samþykkja slíkt núna.
Í fréttinni segir m.a: "Afgerandi lagalegri niðurstöðu í þá veru yrði ekki fagnað á alþjóðavettvangi þar sem að hún myndi varpa ljósi á það hversu gríðarlega illa fjármagnaðir innistæðutryggingasjóðir í Bretlandi, Hollandi og í raun í öllum heiminum eru."
Því verður seint trúað, að íslenskir skattgreiðendur taki sjálfviljugir á sig tuga- eða hundraðamilljarða kostnað til þess eins að setja fordæmi um að allir skattgreiðendur veraldarinnar verði hnepptir í slíkan skattaþrældóm fyrir glæfralega bankastarfsemi, sem nánast alls staðar hefur þrifist undanfarin ár.
Íslendingar hljóta að vera nógu ábyrgir þjóðfélags- og alheimsþegnar til að segja risastórt NEI, þann 9. apríl n.k.
Bretar og Hollendingar sagðir óttast dómstólaleiðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 1146437
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Axel !
Athyglisvert að þú lítur á þetta frá þessu sjónarhorni, þetta innlegg mitt setti ég inn í dag, við eigið blogg um útspil Þórunnar Sveinbjarnadóttur.
"Var rétt í þessu að "renna" í gegn um upplýsingabæklinginn um Icesave kosningarnar, HÉR og þegar maður sér óvissuþættina bæði við "JÁ" og/eða "NEI" er þetta bara enn ljósara að málið verður að fara fyrir og meðhöndlast fyrir dómi, að fórna einni lítilli þjóð aðeins til að viðhalda úrsérgengnu fjármála og bankakerfi í Evrópu er ekki sérlega réttlátt, er það ? sbr. þetta hér í bæklingnum: "Loks telja þau (B/H) að málarekstur um þessi atriði sé til þess fallinn að grafa undan trausti á fjármálakerfi Evrópuríkja." er einhver í vafa um að þessi "kerfi" þurfi á endurskoðun að halda ??
Margt annað í bæklingnum staðfestir það sem undirritaður og margir fleiri hafa haldið fram, nefnilega algert kunnáttuleysi og óvissu um lagalega gildið á samningnum, og þar með er ólöglegt að semja.
Og nú svo þetta úr The Guardian !!
MBKV
KH
Kristján Hilmarsson, 4.4.2011 kl. 17:55
Ég get ekki hugsað mér að skella skuldinni á afabörnin mín. Látum óreiðupésanna sem stofnuðu til þessara reikninga svara til saka og skila peningunum sem þeir komu undan.
Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 4.4.2011 kl. 19:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.