25.1.2011 | 01:08
Sannleikann í dagsljósið strax
Upp er komin ákaflega undarleg staða vegna símtals sem þeir áttu sín á milli seðlabankastjórar Íslands og Englands í októberbyrjun árið 2008 og segir Davíð Oddson, þáverandi seðlabankastjóri Íslands, að Mervyns Kings, bankastjóri Englandsbanka, hafi sagt að Icesaveskuld Landsbankans yrði látin niður falla, færi Landsbankinn á hausinn.
Nú harðneitar Kings að hafa látið þau orð falla, en virðist ekki hafa vitað að til væri upptaka af samtalinu og þegar það kom í ljós hafnar hann með öllu að útskrift af samtalinu verði birt opinberlega og ber við að rædd hafi verið ýmis viðkvæm málefni hinna og þessara bankastofnana.
Að sjálfsögðu þyrfti ekki að birta eitt eða neitt um annað en það sem sagt var um Icesave og hlýtur það að veikja málstað Kings verulega að þora ekki að gefa heimild til að sá hluti samtalsins verði birtur. Fjárlaganefnd Alþingis fékk að lesa úrdrátt úr símtalinu á fundi í kvöld og segja fulltrúar nefndarinnar að innihaldið hafi verið "áhugavert", en því miður séu þeir bundnir trúnaði um það.
Þetta er algerlega óviðunandi fyrir almenning í landinu og það allra minnsta sem fulltrúar hans á Alþingi geta gert, er að upplýsa hvor fer með rétt mál, Davíð eða Kings, því annaðhvor hlýtur að segja ósatt og þjóin á fullan rétt á að vita hvor þeirra það er.
Það er alger lágmarkskrafa að þeir þingmenn sem lásu úrdráttinn í kvöld, hunskist til þess strax í fyrramálið að varpa endanlegu og réttu ljósi á málið og kveða niður allar sögusagnir í eitt skipti fyrir öll.
Fengu að sjá samtal Davíð og Kings | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:26 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Algjörlega sammála þér, það er ekki hægt að kasta svona hálfri frétt út í loftið...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 25.1.2011 kl. 01:15
Sammála.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 25.1.2011 kl. 01:20
Auðvitað á að birta þann kafla sem birtingarhæfur er orð fyrir orð - helst á að spila upptökuna. Ísvona samskiptum geta líka ákvðin orð verið túlkuð á misjafnan hátt - og aþnnig séð kannski báðir haft rétt fyrir sér. En hvað vakir fyrir mönnnum að taka upp svona símtöl og láta hinn aðilan ekki vita af því, er það eðlilegt? - ekki það að það sé lykilatriði í málinu en menn þurfa jú að kunna mannelg samskipti er það ekki.
Ég held að þarna sé orðamisskilnignur i gangi og er sammála þér það á að spila birtingarhæfa kaflan fyrir alþjóð. Þar sem þeir hljóta báðir að vilja hreinsa sitt mannorð þá ætti sú heimild ekki að vefjast fyrir mönnum
Gísli Foster Hjartarson, 25.1.2011 kl. 14:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.