Nú virðist vera því betra sem reynslan er minni í stjórnmálunum

Píratar, sem mælast með allt að 35% fylgi í skoðanakönnunum, virðast strax vera farnir að þrasa sín á milli um frambjóðendur til Alþingis eftir tvö ár og a.m.k. einhverjir þeirra vilja algerlega skipta um fólk á framboðslistum  og þar með losa sig við Birgittu Jónsdóttur og Helga Hrafn Gunnarsson, núverandi þingmenn flokksins.

Þriðji þingmaðurinn sem kosinn var fyrir tveim árum er þegar stokkinn fyrir borð og varamaður mun taka hans sæti við þingsetningu í haust.  Ekki liggur fyrir ennþá hvort sá eigi að fá að sitja lengur er þau tvö ár sem eftir er af kjörtímabilinu.

Samkvæmt áliti ýmissa byggist þetta mikla fylgi Pírata í skoðanakönnunum fyrst og fremst á unga fólkinu, sem aldre les dagblöð, hlustar aldrei á útvarp og horfir ekki á sjónvarp, a.m.k. ekki hefðbundnar sjónvarpsstöðvar.  Þessu unga fólki finnst hefðbundin stjórnmál gamaldags og "púkó" og trúa ruglinu í þeim sem sífellt tala um "fjórflokkinn" og láta með því eins og allir gömlu flokkarnir séu með nánast sömu stefnuna og störf þeirra hugsjónir snúist eingöngu um hagsmunagæslu og klíkuskap.

Fróðlegt verður að fylgjast með stjórnarmyndun eftir næstu kosningar, sem miðað við niðurstöður skoðanakannana undanfarið hlýtur að verða á hendi Pírata og þá líklega eintómra nýliða á þinginu.


mbl.is Skiptar skoðanir meðal pírata
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. ágúst 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband