Árni Páll fékk einu atkvæði meira, þ.e. sitt eigið

Formannskosningin sem fram fór í Samfylkingunni í dag mun komast í sögubækurnar fyrir ýmsar sakir og ekki allar merkilegar.

Formaður til tveggja ára, Árni Páll Árnason, fékk mótframboð frá einum ofstækisfyllsta þingmanni flokksins á vinstri kantinum og var eftir margendurtekna atkvæðatalningu úrskurðaður sigurvegari með eins atkvæðis mun.

Formaðurinn fékk 241 atkvæði, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir 240 atkvæði, eitt atkvæði var greitt öðrum og fimm kjósendur gerðu ekki upp á milli frambjóðenda, þ.e. leist á hvorugan.

Það sem upp úr stendur er að Árni Páll vann formannsslaginn með aðeins einu atkvæði, sem sagt sínu  eigin og er það algert einsdæmi í lýðveldissögunni að nokkur formaður í stjórnmálaflokki skuli hafa náð kjöri þar sem eigið atkvæði réði úrslitum.

Samfylkingin sjálf er í algjörri rúst eftir þetta formannsstríð og mun seint ná vopnum sínum aftur.  Afar ólíklegt er að Árni Páll sitji sem formaður út kjörtímabilið og að minnsta kosti mun hann varla bjóða sig fram til formennsku á næsta landsfundi flokksins ef það verður þá nokkur flokkur við lýði eftir tvö ár til að halda landsfund.

Mun líklegra er að hætt verði að bjóða fram í tvennu  lagi og Björt framtíð og Samfylkingin verði formlega sameinuð, enda buðu þessir flokkar einungis fram í tvennu lagi til að skapa ásættanlegt embætti fyrir Guðmund Steingrímsson.

Í anda endurnýtingar verður hægt að nota öll gömlu slagorðin um sameiningu vinstri manna á Íslandi í einn stjórnmálaflokk.


mbl.is Munaði bara einu atkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lágkúra eða ennþá meiri lágkúra?

Árni Páll Árnason, formaður og ef til vill fráfarandi formaður Samfylkingarinnar, talaði stórkarlalega í setningarræðu sinni á Landsfundi Samfylkingarinnar og lét eins og hann og flokkur hans hefði lausnir á öllum vandamálum þjóðfélagsins og myndi leysa þau fljótt og vel, bara ef hann og flokkurinn kæmust umsvifalaust í ríkisstjórn.

Árni Páll hlýtur að vera búinn að gleyma því að Samfylkingin sat í síðustu ríkisstjórn í heilt kjörtímabil og gegndi sjálfur ráðherraembætti í þeirri stjórn án þess að koma einu einasta máli í framkvæmd, sem hann segir nú að bráðnauðsynlegt sé að koma í verk núna og reyndar þó fyrr hefði verið.

Samkvæmt meðfylgjandi frétt sagði Árni Páll m.a. um setningarræðuna: "Að mati Árna þarf að hækka húsa­leigu­bæt­ur, fjölga íbúðum til leigu og draga úr svim­andi háu leigu­verði. „Þess vegna þurfa leigu­tekj­ur af einni íbúð að vera skatt­frjáls­ar fyr­ir ein­stak­linga, en því aðeins að leiga sé ekki yfir meðal­verði,“ sagði Árni. „Við þurf­um að þróa kerfi viðbót­ar­lána til að gera ungu fólki og tekju­lág­um fjöl­skyld­um kleift að kaupa sína fyrstu íbúð. Sam­fylk­ing­in ætl­ar að tryggja öll­um hús­næði á sann­gjörn­um kjör­um.“"

Ekki virðist hann hafa látið þess getið hvernig hann ætlar að galdra fram allar þessar leiguíbúðir þó hann segi að enginn tími sé til þess að bíða eftir því að þær verði byggðar.  Undanfarin ár hefur Árni Páll og félagar í Samfylkingunni gagnrýnt Framsóknarflokkinn harðlega fyrir loforðið um 90% lán af kaupverði íbúða, en lofar nú að "þróa kerfi viðbótarlána til að gera ungu  fólki og tekjulágum" að kaupa sína fyrstu íbúð.  Þetta er auðvitað ekki útskýrt neitt nánar frekar en aðrir frasar í ræðunni.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður, ásamt unglíngahreyfingu Samfylkingarinnar og Reykjavíkurfélagi flokksins hefur lýst yfir stríði gegn Árna Páli og býður sig fram gegn honum í formannsstólinn.  Í farteskinu hefur hún jafnvel enn óljósari og klisjukenndari frasa en andstæðingurinn, enda vita hvorki flokksmenn né aðrir um hvaða skýjaborgir frambjóðendurnir eru að tala.

Allt bendir því til að Samfylkingunni verði á næstunni stjórnað með mikilli lágkúru í málflutningi eða ennþá meiri lágkúrú.


mbl.is „Við getum ekki bara beðið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. mars 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband