9.12.2011 | 16:01
Saksóknari klúđrar ákćrum enn á ný
Ekki er ennţá búiđ ađ birta dóm hérađsdóms í skattamáli Baugsgengisins, sem á rćtur ađ rekja allt aftur í Baugsmáliđ fyrsta, en ţó er komiđ fram ađ sakfellt hefur veriđ fyrir einhver ákćruatriđi, en refsingu frestađ haldi sakborningar skilorđ í eitt ár.
Skilorđsbinding refsingarinnar á samkvćmt dóminum rćtur sínar ađallega í ţví ađ rannsókn málsins tók alltof langan og óeđlilegan tíma og ţar ađ auki var ákćran svo illa úr garđi gerđ af hálfu embćttis saksóknara, ađ dómarar og verjendur áttu fullt í fangi međ ađ ráđa í ţau gögn sem ákćran byggđi á og ţar ađ auki fylgdu međ ţúsundir skjala, sem komu ekkert viđ sögu í ákćrunni sjálfri.
Dómstóllinn segir m.a. í úrskurđi sínum varđandi skjalameđferđ ákćruvaldsins: "Virđist hún enda miđuđ viđ ţarfir ţeirra sem söfnuđu og röđuđu skjölunum undir rannsókninni. Hefur ţetta valdiđ dómendum og verjendum umtalsverđri fyrirhöfn og töfum, allt frá ţví ađ fariđ var ađ fjalla um réttarfarsatriđi í málinu snemma árs 2009."
Í Baugsmálinu fyrsta var ađeins sakfellt fyrir nokkur "minniháttar" brot og ef rétt er munađ var einmitt sýknađ í "meiriháttar" málunum vegna vanreifunar ţeirra og lélegs málatilbúnađar af hálfu ákćruvaldsins, enda dómarnir í samrćmi viđ ţau vinnubrögđ.
Saksóknaraembćttiđ verđur ađ bćta vinnubrögđ sín verulega ef nokkurt mark á ađ taka á embćttinu framvegis. Engan ţarf ađ undra ađ ţví embćtti skuli ekki hafa veriđ treyst til ađ rannsaka gerđir gengjanna sem ollu bankahruninu og ţeim skelfingum sem yfir ţjóđina hafa gengiđ af ţeirra völdum.
Merkilegt er, og ţó kannski ekkert merkilegt, ađ nöfn sömu einstaklinganna skuli tengjast öllum stćrstu sakamálarannsóknum tveggja síđustu áratuga.
![]() |
Hlutu ekki réttláta málsmeđferđ |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)