Nýju bankarnir yfirtóku "gengislánin" sem íslensk lán, með Seðlabankavöxtum

Við yfirtöku nýju bankanna á lánasöfnum gömlu bankanna var gert ráð fyrir að "gengislánin" væru ólögleg og því voru slík lán flutt til nýju bankanna eins og um óverðtryggð lán í íslenskum krónum væri að ræða og gert ráð fyrir að á þau yrðu reiknaðir þeir vextir sem Seðlabankinn ákvæði fyrir slík lán.

Þetta hefur Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, sagt opinberlega og gerði það reyndar fyrir meira en einum og hálfum mánuði síðan, en þó ótrúlegt sé, virðist enginn kveikja á þessu, þrátt fyrir að ítrekað hafi verið minnt á þessi ummæli hans á þessu bloggi.  Fréttina um málið má sjá hérna

Í fréttinni er þetta haft orðrétt eftir Gylfa:  "En fjármálakerfið var ekki undir það búið að fyrir utan að gengistryggingin sem slík væri dæmd ólögmæt, þá væru lögin túlkuð þannig að hinir erlendu vextir skyldu standa á þessum lánum.

Eðlilegir innlendir vextir, sem eins og flestir vita eru talsvert hærri, væru þau kjör sem gert hefði verið ráð fyrir í þessu samhengi, þegar nýja bankakerfið var sett á fót. Sagði hann að það væri eitthvað sem ekki væri hægt að stinga höfðinu í sandinn vegna eða horfa framhjá."

Það er furðulegt að fylgjast með fréttaflutningi af því hvað Seðlabankinn vissi og vissi ekki fyrir einu og hálfu ári síðan, en engar fréttir af því hvað Gylfi, skilanefndirnar og samninganefndin ríkisins um yfirfærsluna vissu og reiknuðu með, þegar nýju bankarnir voru stofnaðir.

Svona getur fréttamatið verið einkennilegt hjá fjölmiðlunum.

 


mbl.is Seðlabanki birtir lögfræðiálit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirtæki útrásarvíkinga blómstra

Pálmi í Fons er í miklum sóknarhug með flugfélagið sitt, Iceland Express, sem honum tókst að koma undan gjaldþroti Fons á sínum tíma, en Pálmi er gjörkunnugur flugrekstri, eftir að hafa tekið þátt í fjölda viðskipta við Jón Ásgeir í Bónus, vin sinn, með sama flugfélagið og þeir félagar græddu milljarða á til skiptis, eftir því sem þeir sögðu sjálfir.

Jón Ásgeir og Hannes Smárason náðu undir sig Icelandair á árum áður, skiptu félaginu upp og stofnuðu FL-Group (síðar var nafninu breytt í Stoðir), sem fjárfestingarfélag með öllu eigin fé samstæðunnar og seldu svo flugreksturinn, klyfjaðan skuldum sem Icelandair er enn að glíma við að komast út úr og ekki fullséð ennþá hvort það tekst yfirleitt.

Þessi meðhöndlun þeirra "viðskiptasnillinganna" á fjárhag Icelandair hefur rutt brautina fyrir uppgang Pálma með Iceland Express og slíkan viðskiptamáta virðast Íslendingar kunna vel að meta, enda fjölgar viðskiptavinum flugfélags Pálma með hverjum mánuðinum sem líður og væntanlega á kosnað Icelandair, sem félagarnir nánast lögðu í rúst, áður en þeir skildu við það.  Móðurfélagið, Stoðir, varð síðar gjaldþrota, eins og flest félög sem Bónusfeðgar hafa komið nálægt á sínum mislukkaða viðskiptaferli.

Einu fyrirtæki hafa þeir þó full yfirráð ennþá, þrátt fyrir að það sé komið í eigu viðskiptabankans, en það eru Hagar, sem reka Hagkaup, Bónus og fleiri verslanir.  Þakklát fórnarlömb hrunsins sýna þeim feðgum tryggð sína, eins og Pálma í Fons, með því að slá ekkert af viðskiptum sínum við þá og auka frekar við, heldur en hitt.

Svona blómstra helstu útrásarvíkingarnir ennþá og það með dyggum stuðningi landa sinna, sem eru ekkert að erfa við þá misgjörðir fyrri ára.


mbl.is Iceland Express bætir við flugferðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðildarbeiðnina að ESB ber að draga til baka STRAX

Framkvæmdastjórn ESB hefur margoft sýnt sitt rétta andlit, þ.e. andlit kúgarans og yfirgangsseggsins, gagnvart Íslendingum og nægir þar að nefna Icesave, innflutningsbann á makríl frá Íslandi og nú síðast hótun um útilokun íslenskra fiskiskipa frá veiðum innan lögsögu ESB, en bandalagið og Íslendingar hafa skipst á fiskveiðiréttindum um háa herrans tíð.

Íslendingar eiga að draga úr öllum samskiptum við ESB, eins og mögulegt er, því ekki er hægt að stunda viðskipti eða önnur samskipti við aðila, sem sífellt sveifla þrælasvipunni að viðsemjendum sínum og hafa ekki bara í hótunum við þá, heldur skirrast ekki við að beita ofbeldi og kúgunum gegn smáríkjum.

Íslenskir skattgreiðendur, sem undanfarið hafa verið sérstaklega áhugavert herfang fyrir ESB og ríki innan sambandsins, hljóta nú að rísa upp, allir sem einn og krefjast þess að beiðnin um aðild að þessu ofbeldissambandi verði dregin til baka, ekki á næstu vikum heldur núna STRAX.

Ríkisstjórninni ber að grípa til þeirrar aðgerðar án nokkurra tafa og taka síðan öll samskipti við stórríkið væntanlega til gagngerrar endurskoðunar.


mbl.is ESB hótar aðgerðum vegna makríls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styttist í tveggja ára afmæli hrunsins

Nú styttist í tveggja ára afmæli bankahrunsins, sem varð í októberbyrjun 2008, og ennþá hefur ekkert sakamál af stærri gráðunni komið fyrir dómstóla, en þó nokkur minni mál og nokkur skaðbótamál hafa verið höfðuð á hendur eigendum og stjórnendum bankanna.

Um þessar mundir er verið að fjölga starfsmönnum Sérstaks saksóknara og mun vera stefnt að því að þeir verði orðnir 80 á næstu mánuðum.  Þessi starfsmannafjölgun embættisins hefur gengið allt og hægt og embættið verið allt of fáliðað fram að þessu, enda hlýtur hraði rannsókna að fara eftir þeim starfsmannafjölda, sem embættið hefur á að skipa hverju sinni.

Landsmenn eru orðnir langeygir eftir því að "stóru" málin fari að skila sér frá embættinu til dómsstólanna og færi vel á því, að einhver þeirra kæmu í dagsljósið fyrir tveggja ára afmæli "bankaránanna innanfrá" og helst fyrr, því þó þetta séu flókin mál og erfið, þarf að fara að komast til botns í þeim, svo hægt verði að hreinsa upp fortíðina að þessu leyti.

Mörg ár munu hins vegar líða, áður en búið verður að koma málunum til enda í gegnum dómskerfið og því brýnt að fara að koma málum þangað sem fyrst.


mbl.is Von á fleiri ákærum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brýnt að útrýma kjarnorkuvopnum

Um þessar mundir er þess minnst að 65 ár eru liðin síðan kjarnorkusprengjum var beitt í seinni heimstyrjöldinni, þegar slíkum sprengjum var varpað á japönsku borgirnar Hiroshima og Nagasaki, með þeim afleiðingum að yfir tvöhundruðþúsund manns fórst og milljónir hafa glímt við afleiðingar sprenginganna fram á þennan dag.

Sem betur fer hefur slíkum sprengjum ekki verið beitt í stríðsátökum síðan þetta gerðist, en æ fleiri ríki hafa þó verið að koma sér upp slíkum ógnarvopnum í nafni varnarviðbúnaðar, en því fleiri ríki sem koma sér upp kjarnavopnum, því meiri hætta er á að þau verði notuð, eða komist í hendur hryðjuverkamanna, sem tilbúnir eru til þess að drepa sjálfa sig og aðra í nafni "málstaðarins".

Það ætti að vera algert forgangsverkefni í viðræðum þjóða á milli, hvernig útrýma megi þessum vopnum algerlega og samningar gerðir um að enginn kæmi sér upp þvílíkum búnaði, né öðrum sem valdið getur viðlíka hörmungum.

Eins og ástandið er í heiminum, er líklega óraunhæft að reikna með að um algera afvopnun þjóða verði að ræða á næstunni, en auðvitað væri það óskaniðurstaða allra.


mbl.is Minnast fórnarlamba árása á Japan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. ágúst 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband