Gnarr-áhrif í Brasilíu

Jón Gnarr gortaði sig af því á netdagbók sinni fyrir stuttu, að hann væri orðinn hugtak í stjórnmálafræðinni og héti það á ensku "The Gnarr Effect".  Skömmu síðar bárust fréttir af því að ýmsir kollegar hans úr skemmtanabransanum væru komnir í framboð sitt hvorum megin við Atlantshafið, þ.e. í Evróðu og Suður-Ameríku.  Voru þar á meðal boxari, trúður og vændiskona.

Í kosnignabaráttunni sagðist Jón Gnarr ekkert vita um borgarmál og sagðist halda að það væri létt verk og löðurmannlegt að gegna starfi borgarstjórna, enda gæti hann látið borgarstarfsmennina vinna öll verkin, en ætlaði ekkert að gera sjálfur nema þiggja háu launin og einkabílstjórann.

Jón Gnarr er ekki lengur eini trúðurinn sem kosinn hefur verið í almennum kosningum, því brasilíski trúðurinn Tiririca vann mikinn sigur í þingkosningum og mun taka sæti á brasilíska þinginu fyrir höfuðborgina Sao Paulo.  Sá brasilíski aðlagaði kosningabaráttu Jóns Gnarrs að aðstæðum heima fyrir og helsta kosningaloforð hans hljóðai svona:  "Hvað gerir þingmaður? Það veit ég sannarlega ekki. En ef þú kýst mig þá skal ég komast að því fyrir þig."

Nú á bara eftir að koma í ljós hvort Gnarr-áhrifin séu búin að ná svo góðri fótfestu í Evrópu, að það dugi vændiskonunni og boxaranum til kosningasigurs.


mbl.is Trúður kosinn á brasilíska þingið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrræðalaus ríkisstjórn og ömurlegar jólagjafir

Það er með ólíkindum að lesa frétt um að ríkisstjórnin hafi lofað AGS því, í tengslum við þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar sjóðsins og stjórnarinnar, að ekki muni verða boðið upp á frekari úrræði fyrir skuldug heimili, sem á næstunni munu lenda á uppboðum, þúsundum saman.  Fyrr í dag var bloggað HÉRNA um að til neyðarráðstafana þyrfti að grípa til að útvega þessum fjölskyldum húsaskjól, því varla ætlast ríkisstjórnin til þess að fólk sem missir íbúðir sínar, búi á götunni eða á stofugólfi ættingja sinna til frambúðar.

Í fréttinni má lesa þessi ótrúlegu skilaboð frá AGS:  "Í orðsendingu frá starfsmönnum sjóðsins er því fagnað að frestun nauðungaruppboða verði nú felld úr gildi. Hins vegar koma einnig fram áhyggjur vegna þess að stjórnvöld hafa ekki haft hemil á væntingum almennings um frekari skuldaúrræði.

Stjórnvöld eigi þannig að senda út sterk skilaboð þess efnis að ekki verði frekar komið til móts við skuldara með lagasetningum eða öðru."

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa þá verið að segja ósatt undanfarna daga, þegar þeir hafa boðað nýjar og róttækar aðgerðir til að koma til móts við fjölskyldur, sem eru að missa húsnæðið um þessar mundir og ekki síður á næstu mánuðum. 

Bæði lygar og úrræðaleysi hinnar hreinu og tæru vinstri stjórnar, sem kennir sig við norræna velferð, eru ömurlegar jólagjafir til þeirra barna og foreldra, sem lenda á götunni fyrir hátíðarnar.


mbl.is Engin fleiri úrræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgunarsveit fyrir heimilin

Steingrímur J. talar tungum tveim, eftir því hvort hann er í stjórn eða stjórnarandstöðu og það er neyðarlegt að hlutst á orð hans og fleiri þingmanna, sem þeir létu falla á meðan þeir voru í stjórnarandstöðu, miðað við hvernig talað er þegar stjórnarseta tekur við og má t.d. benda á hvernig Steingrímur talaði um AGS og Icesave á meðan hann var í minnihluta og svo hvernig hann talar um sömu hlutina núna.

Ríkisstjórnin virðist hafa þurft tæp tvö ár til að skilja, að gífurlegur fjöldi heimila í landinu er í verulegum kröggum og íbúðir þeirra munu verða seld á uppboðum á næstu mánuðum og fólk á öllum aldri mun lenda á götunni, eða upp á náð og miskunn ættingja, sem hugsanlega gætu hýst einhverja í svefnpokum á dýnum á stofugólfunum hjá sér um einhvern tíma.  Slíkt er þó auðvitað algerlega óásættanlegt og engin lausn fyrir fólk, sem lendir í þeirri ógæfu að missa heimili sitt ofan á aðra erfiðleika, t.d. atvinnuleysi.

Þegar fólk villist í óbyggðum, skip lenda í sjávarháska eða önnur óhöpp verða, er alltaf kallað á björgunarsveitir til aðstoðar og hafa þær unnið mikið og óeigingjarnt starf í gegnum tíðina og bjargað ótal mannslífum.  Nú þegar fjöldi manns lendir í ógæfu vegna skuldsetninga, sem engu máli skiptir í raun hvernig til eru komnar, og er að missa heimili sín, er ekki hægt að ætlast til að björgunarsveitir sjálfboðaliða geti komið þar til bjargar, heldur verður að ætlast til þess að ríkisvaldið og sveitarfélögin hafi frumkvæði að slíku, enda ber þeim lagaleg skylda til þess.

Íbúðalánasjóður hefur eignast mörg hundruð íbúðir á undanförnum mánuðum, en hefur ekki lagaheimild til að leigja þær út, enda lánastofnun og einbeitir sér að fjármögnun íbúðarkaupa.  Hins vegar gæti ríkið og ætti, að stofan leigufélag um þessar íbúðir, þannig að nýtt félag keypti þessar íbúðir af Íbúðalánasjóði og leigði þær síðan út til fólks, sem hefur misst eignir sínar og er á vergangi með börn sín.  Leigan yrði að vera í takt við leigu á almennum markaði, sem reiknast út frá þeim kosnaði, sem húseigandinn leggur út vegna hins leigða og nýtt ríkisfélag ætti að vera hrein viðbót við leigumarkaðinn, en ekki sett til höfuðs einkaaðilum á þeim markaði.

Þegar neyð ríður yfir, verður að grípa til neyðarráðstafana og ekki hika í mörg ár, eins og því miður er staðreyndin með núverandi ríkisstjórn.


mbl.is Líta mótmælin öðrum augum nú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skríllinn haldi sig fjarri

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, heldur stefnuleysisræðu sína á Alþingi í kvöld og verður útvarpað og sjónvarpað frá þinginu á meðan umræður um getuleysi ríkisstjórnarinnar fer fram.  Ekki er búist við miklum eða stórum tíðindum frá Jóhönnu að þessu sinni, frekar en áður, enda hefur hún margsýnt vangetu sína til að stýra ríkisstjórninni og aðrir ráðherrar því verið eins og höfuðlaus og hugmyndasnauður her, sem ekki hefur haft nokkra getu til að takast á við ástandið í þjóðfélaginu eftir banka- og efnahagshrunið. 

Landinu er reyndar stjórnað af AGS og ráðherrarnir virðast eingöngu vera sendisveinar starfsmanna sjóðsins, án þess þó að vilja viðurkenna það opinberlega, nema þegar þeir lenda í alvarlegum vandræðum með að svara fyrir sig, þá er gjarnan gripið til þess að segja, að svona vilji AGS hafa hlutina.

Boðað hefur verið til mótmæla við Alþingishúsið á meðan að umræður um stefnuleysisræðuna standa yfir og er fólk hvatt til að mæta með "áhöld sem heyrist vel í" og skapa þannig nógu mikinn hávaða til að trufla störf þingsins.  Mótmæli gegn því ástandi sem ríkir í þjóðfélaginu og getuleysi ríkisstjórnarinnar til að takast á við það, eru sjálfsögð en mega ekki ganga svo langt að þau eyðileggi starfsfrið þingsins og hvað þá að skríll notfæri sér ástandið til að grýta fólk og fasteignir með alls kyns óþverra, sem bæði valda hættu á líkamsmeiðingum og kostnaðarsömu tjóni á eignum.

Vonandi heldur skríllinn sig fjarri Austurvelli í kvöld og ekki síst grímuklæddur uppvöðslulýður, sem sækir sér fyrirmyndir að klæðnaði til glæpakvikmynda og erlendra hryðjuverkamanna.  Svoleiðis skríll, sem eingöngu mætir til mótmælaaðgerða til að fremja skemmdarverk í þeim tilgangi að hleypa ástandinu upp í átök við lögregluna, setur ljótan blett á annars eðlileg og réttmæt mótmæli.

Vonandi fara mótmælin í kvöld friðsamlega fram og án þátttöku skrílsins, sem mætir á vettvang í þeim eina tilgangi að hleypa málum í bál og brand.

 


mbl.is „Tunnumótmæli“ við stefnuræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. október 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband