Eva Joly tali varlegar

Eins nauðsynlegt og það var að fá Evu Joly til ráðgjafastarfa hjá sérstökum saksóknara og þann aðgang að erlendu sérfræðinganeti, sem hún hefur tengsl við, þá verður hún, eins og aðrir, að skilja og fara eftir þeim lögum sem gilda í landinu.  Hún getur ekki krafist afsagnar ríkissaksóknara, né talað óvarlega á opinberum vettvangi um þá einstaklinga, sem sæta nú rannsókn á stórkostlegum efnahagsbrotum.

Hér gilda ákveðin lög um vanhæfi og ekki verður betur séð, en ríkissaksóknari hafi farið eftir þeim, fyrir sitt leyti og Eva Joly þarf að sætta sig við það.  Eins þarf hún að tala varlegar um grunaða einstaklinga til þess að gera sjálfa sig ekki vanhæfa, að íslenskum lögum.  Hún, eins og aðrir, verða að vera tilbúnir að sæta gagnrýni fyrir sín störf, ef ástæða þykir til.

Hins vegar kemur gagnrýni Sigurðar G. Guðjónssonar, hrl., úr hörðustu átt, enda maðurinn einn af innstu koppum í búri útrásarvíkinganna og störf hans í bankaráði Glitnis örugglega til rannsóknar, eins og gerðir annarra banka- og útrásarmógúla.

Í Baugsmálinu fyrsta tókst sakborningunum að koma af stæð hreinu múgæði, til stuðnings hinum ákærðu og gegn ákærendum.  Það má ekki gerast aftur, að þeim takist að gera saksóknarana tortryggilega og snúa nýju múgæði sér í vil.  Reyndar er ekki útlit fyrir að það takist, því nú hata allir, sem elskuðu áður, Baugsliða sem og aðra glæframenn.

Sigurður G. er byrjaður að undirbúa vörnina fyrir sjálfan sig og félaga sína. 

Það er svo sem ekkert við því að segja.

 

 


mbl.is Málflutningur Joly gagnrýndur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komnir einni tröppu of ofarlega í getustiganum

Það sem einkennir ríkisvinnuflokkinn, er svokallað Peters lögmál, en það hljóðar svona:  "Hvar þar sem störfum er raðað eftir mikilvægi, hnikast hver starfsmaður upp eftir starfatröppunni, uns hann kemst einu starfi ofar en hann ræður við."

Þegar menn hugleiða þetta lögmál, dettur þeim strax í hug nokkur nöfn, t.d. Jóhanna Sigurðardóttir, Árni Páll Árnason, Össur Skarphéðinsson, Steingrímur J. Sigurðssson, Ögmundur Jónasson, Katrín Jakobsdóttir o.frv., o.sfrv.

Ríkisvinnuflokkurinn er búinn að hafa fjóran og hálfan mánuð til að vinna efnahagstillögur, en hefur ekki komið sér saman um nokkurn skapaðan hlut í þeim efnum ennþá.  Nú situr flokkurinn í Ráðherrabústaðnum og reynir að sætta gjörólík sjónarmið ráðherranna til málsins, en heiftarlegur ágreiningur hefur verið milli stjórnarflokkanna og eins innan flokkanna sjálfra.

Þegar innsti koppur í búri smáflokkafylkingarinnar lætur hafa eftirfarandi eftir sér, þá hlýtur mikið að hafa gengið á áður, en fréttin endar svona:  "Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, sagði í samtali við blaðamann mbl.is í dag að hann vonaðist til þess að fá skýrari svör varðandi það hvað ríkisstjórnin ætlist fyrir á fundinum varðandi rekstrargrundvöll fyrirtækja.

„Það virðist ekki standa á því að hækka skatta og gjöld en hvað varðar aðgerðir til að tryggja rekstur fyrirtækja höfum við ekki enn fengið nein skýr svör," sagði hann. „Það sem við höfum verið að biðja um er að fá að sjá heildarpakka og lausnir inn í framtíðina. Vonandi styttist í að við fáum að sjá eitthvað slíkt."" 

Aðilar vinnumarkaðarins hafa verið að biðja um að fá að sjá einhverjar tillögur um aðgerðir og það hefur öll þjóðin verið að gera líka.

Vonandi dettur vinnuflokkurinn ekki afturábak niður getustigann.

 


mbl.is Fulltrúar boðaðir til fundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. júní 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband