Guðjón er ÞJÁLFARINN

Guðjón Þórðarson hefur margsannað að hann er besti knattspyrnuþjálfari landsins, enda nær hann nánast undantekningalaust frábærum árangri með þau lið, sem hann þjálfar.

Í sumar tók hann að sér þjálfum ungs liðs BÍ/Bolungavík og hefur á skömmum tíma gert úr því lið, sem enginn getur fyrirfram verið viss um að vinna. Þetta sannaðst eftirminnilega í gær, þegar liðið vann spútniklið ÍA á heimavelli þess, 2-1, en ÍA er lang efst í riðlinum og hefði, með sigri, getað tryggt sér rétt til að leika í efstu deild á næsta ári.

Þetta er sætari sigur fyrir BÍ/Bolungavík fyrir það, að Akranes er heimabær Guðjóns og hann er fyrrverandi þjálfari Skagaliðsins og náði frábærum árangri með liðið á sínum tíma.

Enginn þjálfari landsliðs karla í knattspyrnu hefur náð eins góðum úrslitum í landsleikjum og Guðjón gerði á sínum ferli, sem landsliðsþjálfari, og nú er svo ástatt með landsliðið að enginn reiknar lengur með að það vinni leiki sína. Núna er markið ekki sett hærra en svo, að vonast til að niðurlæging liðsins verði sem minnst í hverjum leik.

Landsliðsþjálfarastaðan losnar í haust og ætti Guðjón Þórðarson að vera sjálfsagður til að taka þar við. Vafalaust tækist honum á skömmum tíma að laga orðspor liðsins umtalsvert.

Fyrsta takmark hans ætti að vera að koma íslenska liðinu upp fyrir það færeyska á heimslistanum.


mbl.is Þórður: Sætt að vinna fyrir Guðjón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst að vissu leyti spennandi tilhugsun að fá Guðjón aftur í brúna en það sem dregur mikið úr spenningnum er reynslan af því hvað hann er gjarn á að hlaupa frá hálfnuðu verki til að spreyta sig í ensku deildunum. Hann stakk af frá landsliðinu í miðjum klíðum þegar honum var falið það ábyrgðarhlutverk á sínum tíma og gerði það sama við Keflvíkinga þegar hann hrökklaðist tímabundið hingað upp á sker. Ef honum verður fengin landsliðsþjálfarastaðan á ný verður að gera þá kröfu að samningurinn sé óuppsegjanlegur af hans hálfu - annars má vel búast við því að hann þjálfi liðið rétt nógu lengi til að það byrji að ná árangri... og stökkvi svo frá borði þegar hann fær betra tilboð frá Englandi.

Haraldur Jóhannsson (IP-tala skráð) 13.8.2011 kl. 02:55

2 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Algjörlega sammála Haraldi, eins og skrifað af mínu lyklaborði....

Gísli Sigurðsson, 13.8.2011 kl. 17:11

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Ég tek alveg undir það, að slíkur samningur þyrfti að vera til t.d. þriggja ára og uppsegjanlegur, jafnvel af beggja hálfu.

Axel Jóhann Axelsson, 13.8.2011 kl. 18:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband