Belgía og Frakkland næst?

Vegna þess hruns sem orðið hefur að undanförnu á hlutabréfamörkuðum heimsins, hafa ríkisstjórnir og seðlabankar gripið til ýmissa ráða til að róa fjárfesta og skapa ró á fjármálamörkuðum.

Nýjasta útspilið í þeim efnum er bann fjögurra Evruríkja við skortsölu hlutabréfa, en það eru Ítalía, Spánn, Belgía og Frakkland. Tvö fyrstnefndu ríkin hafa átt við mikla efnahagserfiðleika að stríða, ekki síst Spánn, Belgía hefur verið nefnd í sambandi við hugsanlega neyðaraðstoð, en að Frakkland skuli vera á þessum lista vekur alveg sérstaka athygli.

Frakkland hefur, ásamt Þýskalandi, verið leiðandi ríki innan ESB og þegar stórar ákvarðanir þarf að taka varðandi evruna og björgun illa staddra evruríkja, setjast ráðamenn í þessum tveim löndum jafnan saman á einkafundum og ráða ráðum ríkjanna og aðrir minni spámenn verða síðan að fylgja þeirri stefnu sem leiðtogar Frakklands og Þýskalands ákveða.

Undanfarið hafa hlutabréf franskra banka hríðfallið á mörkuðum og bannið við skortsölunni því örvæntingarráð til að reyna að koma í veg fyrir frekari lækkanir þeirra.

Aukist efnahagsörðugleikarnir í Frakklandi á næstunni er útséð um hvað verður um evruna sem gjaldmiðil og þá fyrst myndi verulega fara að hrikta í undirstöðum ESB og óvíst að sambandið stæðist slíkt áfall.

Hvenær skyldi "samninganefnd" Íslands um innlimun landsins í þetta ógæfusamband verða kölluð heim?


mbl.is Lækkun þrátt fyrir bann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ætli þeir myndu leggja bann við hlutabréfakaupum ef útlit væri fyrir mikla hækkun þeirra? Líklega ekki...

Ætli þeir myndu grípa inn í viðskipti ef verð á tilteknum bréfum rís mjög hratt, t.d. tvöfaldast á nokrum mínútum? Líklega ekki...

Ætli það yrði kallað til neyðarfundar þegar gengi evrunnar styrkist mjög mikið? Nei, líklega ekki...

Yfirvöld á evrusæðinu virðast eingöngu hafa áhuga á að grípa inn í fallandi markaði en ekki þá sem eru stígandi.

Ríkisvædd markaðsmisnotkun er núna það eina sem kemur í veg fyrir algjört fjármálahrun í Evrópu. Nýja-Sovét er risið eins og fuglinn Felix!

Guðmundur Ásgeirsson, 12.8.2011 kl. 12:06

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Þetta er draumaveröld þriðjungs þjóðarinnar, sem virðist vera harðákveðinn í því að draga hina tvo þriðju hluta hennar með öllum tiltækum ráðum inn í martröðina.

Axel Jóhann Axelsson, 12.8.2011 kl. 13:47

3 identicon

Axel, ert þú komin með dagsetningu á hrunið?

jkr (IP-tala skráð) 12.8.2011 kl. 17:47

4 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

jkr, hvort ert þú illa læs eða hefur svona lítinn lesskilning? Ég var ekki að spá hruni, en sagði hinsvegar:

"Aukist efnahagsörðugleikarnir í Frakklandi á næstunni er útséð um hvað verður um evruna sem gjaldmiðil og þá fyrst myndi verulega fara að hrikta í undirstöðum ESB og óvíst að sambandið stæðist slíkt áfall."

Þú hlýtur að skilja þetta, ef þú lest þetta nokkrum sinnum yfir.

Axel Jóhann Axelsson, 12.8.2011 kl. 18:33

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Athyglisbrestur er því miður ein af hliðarverkunum óhóflegrar netnotkunar og gerir fólki gjarnan erfitt um vik að lesa og skrifa meira en...

[Þessi athugasemd er yfir 140 bókstafa hámarki]

Guðmundur Ásgeirsson, 14.8.2011 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband