Vitrænasta ESB tillagan

Ályktun Hins íslenska tófuvinafélags um ESB aðildarumsóknina er líklega eina vitræna tillagan, sem fram hefur komið vegna inngöngubeiðnarinnar, enda ekki vitað til þess, að ríkisstjórnarnefnan hafi lagt fram neinar kröfur í málinu, aðeins sett allt opinbera apparatið í að svara spurningum frá ESB, en ekki lagt fram neinar kröfur eða spurningar sjálf.

Besti hluti tillögu tófuvinafélagsins er þessi:  "Jafnframt gerir félagið það að ófrávíkjanlegri kröfu að skuggabaldrar tilheyri um eilífð íslensku þjóðinni en skoffín megi flytja til Brussel óheft til hagsbóta fyrir gjörvallt Evrópusambandið."

Taki Samfylkingarfólk síðasta hluta setningarinnar til sín persónulega, þá eru það mjög eðlileg viðbrögð, enda dreymir margt af því, að komast í feit embætti í Brussel.

Hvort sá útflutningur verði til hagsbóta fyrir gjörvallt Evrópusambandið er reyndar óvíst.

En fækkun þess hérlendis yrði a.m.k. Íslandi til hagsbóta.


mbl.is Hagsmuna tófunnar verði gætt í Icesave-máli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þessi ályktun er tær snilld! ;)

Guðmundur Ásgeirsson, 26.10.2009 kl. 13:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband