Ísland ekki með á velmegunarlistanum

Legatum í London hefur birt lista yfir lönd, þar sem þeim er raðað eftir velmegun.  Finnland er í efsta sæti og Zimbabawe í því neðsta.  Löndunum er raðað á listann, ekki eingöngu eftir fjárhagslegum þáttum, heldur lýðræðisþróun og stjórnarháttum.

Ekki kemur fram í fréttinni af þessu, hversu mörg lönd eru á þessum lista, en Ísland er að minnsta kosti hvergi nefnt á nafn í frétt Financial Times af málinu og er allavega ekki á meðal tuttugu efstu ríkja.

Þó líklegt sé, að bankahrunið hérlendis hafi áhrif á fjarveru Íslands af listanum, er miklu líklegri skýring sú, að stjórnarhættirnir nú um stundir hafi þar miklu meiri áhrif.

Ísland hefur ávallt fram að þessu verið talið í fremstu röð, hvað varðar lýðræðisþróun og stjórnarhætti.

Það er orðið breytt, með þeirri verklausu og skattabrjáluðu ríkisstjórnarnefnu, sem nú er við völd.


mbl.is Velmegun mest í Finnlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ástandið er ekki bara þessari ríkisstjórn að kenna.. heldur fyrri stjórnum líka.

En það er rétt, lýðræðið er ekkert á íslandi... eins og vanalega eiga skrælingjarnir að borga undir rassgatið á spilltum stjórnmálamönnum og elítu... þöggun ræður ríkjum...
Núverandi ríkisstjórn er td að herða reglur gegn tjáningarfrelsi.. og Katrín er stolt af því.

Mér segir svo hugur að við fólkið verðum að rísa upp og rífa þessar blóðsugur af okkur ...

DoctorE (IP-tala skráð) 26.10.2009 kl. 08:55

2 identicon

Dæmigert fyrir Bananalýðveldið Ísland að aðeins einn þingmaður fattaði svindlfrumvarpið um aðstoð við skuldug heimili.  Svikin og prettirnir eru orðnir svo yfirgengilegir að það er ekki í mannlegum mætti að fylgjast með. 

Gísli Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 26.10.2009 kl. 09:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband