Hortugur lagabrjótur

Þegar Jóhanna Sigurðardóttir var Félagsmálaráðherra stóð hún fyrir lagabreytingum um vald Jafnréttisstofu í þeim að efla stofnunina með þeim ásetningi að mark yrði tekið á úrskurðum hennar og stofnanir ríkisins myndu ekki komast lengur upp með að hunsa þá bótalaust.

Sem forsætisráðherra hefur Jóhanna gerst sek um að brjóta lögin sem hún barðist sjálf fyrir að innleiða og nú bregður svo við að hún reynir að gera lítið úr Jafnréttisstofu, hártoga niðurstöðu hennar og gefa í skyn að úrskurðurinn hafi verið svo vafasamur að sérstakan "rýnihóp" þyrfti að setja á fót til að yfirfara niðurstöðuna.

Héraðsdómur hefur nú "rýnt" í þetta mál og komist að sömu niðurstöðu og Jafnréttisstofa, þ.e. að Jóhanna Sigurðardóttir sé lagabrjótur af hortugustu gerð, enda reyndi hún að niðurlægja þann umsækjanda sem hún sniðgekk við ráðningu eftir að hafa brotið lögin sem um slíkar ráðningar gilda.

Með sanni má segja að Jóhanna Sigurðardóttir sé hortugur lagabrjótur. Ef til vill ekki undarlegt ef litið er til framkomu hennar almennt í samskiptum við annað fólk.


mbl.is Fagnar niðurstöðu héraðsdóms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hún er óhæf í mannlegum samskiptum virðist vera.  Og óhæfur stjórnandi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.6.2012 kl. 21:14

2 identicon

Jóhanna er sennilega slakasti leiðtogi íslenskra stjórnmála frá upphafi sjálfstæðisbaráttunnar á 19. öld.

Hennar stjórnunarstíll byggist mikið til á hótunum, hinu og þessu er hótað til þess að fá sitt fram.

Þorgeir Ragnarsson (IP-tala skráð) 21.6.2012 kl. 09:35

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mér finnst niðurlægjandi að hafa svona yfirstjórnanda yfir einni af æðstu stofnun landsins.  Manneskju sem svo greinilega er bæði vanhæf í starfi og að velja sér samstarfsfólk. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.6.2012 kl. 10:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband