Veiðigjaldið í Auðlindasjóð en ekki ríkissukk

Öll vinnubrögð ríkisstjórnarinnar og stjórnarflokkanna í málefnum sjávarútvegsins er til mikillar skammar fyrir alla aðila og algerlega óboðleg þegar um svo stór hagsmunamál er að ræða, en í þessu tilfelli er hvorki meira né minna en höfuðatvinnuvegur þjóðarinnar sem um er vélað.

Allir umsagnaraðilar um veiðigjaldafrumvarpið voru sammála um að það væri hroðalega illa unnið og myndi að öllum líkindum leggja íslenskan sjávarútveg í rúst og þrátt fyrir margítrekaðar kröfur stjórnarandstöðunnar á þingi og annarra aðila, sem málið varðar, fengust ekki lagðir fram neinir útreikningar um áhrif frumvarpsins á þjóðarhag og verður það að teljast með ólíkindum í slíku stórmáli.

Kristján Möller, formaður Atvinnuveganefndar Alþingis, viðurkennir að enginn viti í raun og veru hvernig þessi væntanlegu lög um veiðigjald muni fara með undirstöðuatvinnuveginn, en segir að það muni allt verða reiknað út á næstu árum, en þá gæti það að vísu verið orðið of seint fyrir atvinnugreinina, sérstaklega ef hún verður dauð áður en niðurstaða í þá útreikninga fæst.

Í raun er verið að pressa þessi lög í gegn á þessu þingi í þeim eina tilgangi að ríkisstjórnin geti lagt fram eyðslu- og sukkfjárlög fram fyrir næsta ár, sem er kosningaár og því mikið í húfi fyrir ríkisstjórnina að láta líta út fyrir að fjármál ríkissjóðs bjóði upp á slíkt eyðslufyllerí sem Kristján gefur í skyn að bjóða eigi til á næsta ári.

Sjálfsagt er að veiðigjald standi undir kosnaði ríkisins af Hafrannsóknarstofnun og öðru sem snýr beint að fiskveiðum og vinnslu, en allt sem þar er umfram ætti að leggjast í Auðlindasjóð sem aðeins yrði nýttur í neyðartilfellum, þ.e. t.d. þegar aflabrestur eða aðrar efnahagshörmungar ganga yfir þjóðina.

Þess vegna á auðvitað að nota veiðigjaldið núna til að létta á skuldabyrði ríkissjóðs eftir síðasta efnahagsáfall, en alls ekki að nota það í kosningasjóð Samfylkingar og Vinstri grænna.


mbl.is Kristján: Hefðum mátt vera sneggri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rétt hjá þér. Það ætti í raun og veru og fara norsku leiðina, en ég myndi vilja ganga skrefinu lengra og setja allar auðlindir landsins ekki bara fiskinn, í einn sjóð og já gera þetta faglega eins og Norðmenn og láta landið í heild sinni hagnast af auðlindum þjóðarinnar.

Þórarinn (IP-tala skráð) 19.6.2012 kl. 23:20

2 identicon

Allt hverju orði sannara hjá færsluritara.

Næsta árið verður erfitt, því öllu verður umturnað vegna komandi kosninga. Þessari ömurlegu ríkisstjórn verður enn mikilvægara að framlengja líf sitt eilítið lengur eftir því sem nær dregur kosningum.

Þorgeir Ragnarsson (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 12:44

3 identicon

Ok Axel gott og vel. En þínar tillögur hvernig á að ná til baka þeim þjófnaði, sem stórtækustu glæpamönnum íslensku þjóðarinnar, fyrr og síðar, Davíð Oddsyni og Halldóri Ásgrímssyni, tókst að koma á, lát mig heyra?

sir Humpfree (IP-tala skráð) 21.6.2012 kl. 04:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband