Allar kauphækkanir beint í Icesave - annars óbreytt laun?

SA og ASÍ hafa sameiginlega gefið út þá yfirlýsingu, að verði þrælasamningurinn um Icesave ekki samþykktur á laugardaginn, þá verði ekki um neina kjarasamninga að ræða, a.m.k. ekki nema þá til skamms tíma með afar litlum, sem engum, kauphækkunum.

Þetta er ekki hægt að skilja öðruvísi en svo, að reikna eigi með að allar launahækkanir næstu ára skuli ganga nánast beint til Breta og Hollendinga verði þrælasalan samþykkt, en að öðrum kosti fái launþegar engar kjarabætur, enda geti þeir þá lifað af óbreyttum tekjum, losni þeir við að borga þrælaskattinn til hinna erlendu drottnara.

Aldrei í sögunni hafa aðrar eins yfirlýsingar komið frá aðilum vinnumarkaðarins í tengsum við kjarasamninga.

Stórfurðulegt er að lítið vandamál virðist hafa verið að samstilla ASÍ og SA í þessu efni.

Hafa þessi samtök einhverjar samþykktir félaga sinna á bak við þessar hótanir?


mbl.is Fundur í kvöld eða fyrramálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi landráðsklíka heldur bara áfram og ekkert hrædd um að koma upp um sig!

Árni (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 15:53

2 Smámynd: Elle_

Ekki býst ég við að ASÍ hafi neina á bak við sig nema SA-klíkuna og e-a afvegaleidda sem hafa trúað lygunum og nokkra sem fylgja pólitískum flokkum.   Málið er ógeðslegt og rotið.  Hvernig getum við stoppað hótanir opinberra aðila meðan sjálf stjórnvöld hóta okkur og ógna?

Elle_, 6.4.2011 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband