Ræfilslegir norðurlandaráðherrar

Á Norðurlandaþingi sem nú stendur yfir hafa utanríkisráðherrar þjóðanna samþykkt að hvetja írönsk stjórnvöld til að fresta aftöku Sakineh Ashtiani, en hún hefur verið dæmt til að grýtast í hel vegna framhjáhalds. 

Þegar fólk er grýtt til dauða er það vanalega grafið í sand, þannig að lítið annað en höfuðið stendur upp úr og síðan er það grýtt og líftóran kvalin úr fórnarlambinu á meðan höfuð þess mélast.  Þetta er villimannleg aðferð við að lífláta fólk og fáar dauðarefsingar jafn ógeðslegar, þó engar dauðarefsingar eigi nokkurn rétt á sér þó "snyrtilegri" séu.  Ofan á annan viðbjóð grýtinganna, þá eru þær aðallega notaðar til að hegna fyrir framhjáhald kvenna, en karlmönnum er ekki refsað fyrir slíkt og hvað þá með lífláti.

Samþykktin á Norðurlandaþinginu var svo aumingjaleg, að ráðherrarnir fóru með henni þess vinsamlegast á leit við írönsk stjórnvöld, að þau frestuðu grjótkastinu en fóru ekki fram á að algerlega yrði hætt við það og dómur konunnar mildaður og yrði í einhverju samhengi við "glæpinn".  Þess ber að geta að konan hafði áður verið dæmd fyrir þátttöku í morði eiginmanns síns og fengið fyrir það ævilangan fangelsisdóm, en refsingin við framhjáhaldinu er grýting til dauða.

Þessi ályktun utanríkisráðherranna er ófyrirgefanlega ræfilsleg og löndum þeirra allra til skammar.


mbl.is Hvetja Írana til að fresta aftöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Hjartanlega sammála Axel. Þetta er ein af hryllings staðreyndunum  sem verður að eyða.

Bergljót Gunnarsdóttir, 3.11.2010 kl. 14:31

2 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Reyndar er þessi ályktun gersamlega í stíl við þessa leiksýningu sem að Norðurlandaráðsþing er að jafnaði.  Varla að maður muni nokkuð af svona samkomu, nema þegar Palle Pedersen fra Hallested, var að klæmast á skandinavískunni.  Annars eru þessi þing lofsöngur um ágæti norrænnar samvinnu, sem virkar reyndar misvel, þegar að battery eins og ESB blanda sér í málið.

Kristinn Karl Brynjarsson, 3.11.2010 kl. 15:35

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Orð í tíma töluð Axel en þessi kona er ekki sek um annað en að vera til.

Svokölluð morðákæra var fundin upp þegar fyrri dómur hennar lenti í kastljósi fjölmiðla.  Hún hefði alveg eins getað verið kærð fyrir að vera geimvera eða borða Cherious.  

Það má lesa um sögu hennar hérna.

http://en.wikipedia.org/wiki/Sakineh_Mohammadi_Ashtiani

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 3.11.2010 kl. 15:48

4 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Ómar, auðvitað er líklegt að samsektin í morðinu sé hreinn uppspuni og ráðherrarnir áttu að sjálfsögðu að krefjast þess að konan yrði náðuð og látin laus.

Ég var ekki hvað síst að benda á fáráðleika refsinganna, lífstíðardómur fyrir aðild að morði, en grýting til bana fyrir framhjáhald.  Karlaveldið þarna lætur ekki að sér hæða.

Axel Jóhann Axelsson, 3.11.2010 kl. 19:34

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Já, og þetta er besta blogg sem ég hef lesið í dag.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 3.11.2010 kl. 19:43

6 identicon

Takk fyrir þetta.  Alveg sammála, þetta er mjög lélegt.  Samt er gott að þessi skilaboð komist áleiðis, en væntanlega lítið hlustað á þau.

Skúli (IP-tala skráð) 3.11.2010 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband