Eymd til margra áratuga?

Ríkisstjórnin hefur marg lýst því yfir að efnahagsbati á Íslandi hafi tekið algerum stakkaskiptum undanfarið og mikill skriður sé kominn á hagvöxt og þessi umskipti séu algert kraftaverk og gagnrýni á verk ríkisstjórnarinnar stafi annað hvort af misskilningi, vanþekkingu eða hreinni illmennsku.

Í Peningamálum seðlabankans eru jafnan gerðar hagspár og þó þær hafi í sjálfu sér ekki verið glæsilegar, hafa þær þó reiknað með batnandi efnahag og hefur hann átt að batna á hverjum ársfjórðungi allt þetta ár, en svo gerist það aldrei vegna hatrammrar baráttu ríkisstjórnarinnar gegn allri atvinnuuppbyggingu, aukningu verðmætasköpunar og minnkun atvinnuleysisins.

Í vaxtalækkunarfréttinni segir m.a:  "Samkvæmt spánni sem birt er í Peningamálum í dag, verður þróttur innlends efnahagslífs í ár og á næsta ári heldur minni en Seðlabankinn spáði í ágúst."  Jafnvel tveggja mánaða gömul efnahagsspá seðlabankans var of bjartsýn og því orðin úrelt, vegna þess ástands sem ríkisstjórnin vill viðhalda og gera verra með öllum ráðum.

"Norræna velferðarstjórnin" er helsta böl þjóðarinnar um þessar mundir og er þá ekki eingöngu átt við efnahagsmálin, heldur drepur hún niður allan þrótt, lífs- og baráttuvilja þjóðarinnar og ef henni tekst það að fullu, verður hér varanleg eymd til margra áratuga.

 


mbl.is Enn svigrúm til vaxtalækkunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hárrétt Axel, þetta er farið að minna óþægilega á áróður gömlu Sovétríkjanna þar sem allir kommunistaflokkar í Evrópu og flokkar tengdir þeim eins og alþýðubandalagið fengu skipanir um að dásama efnahagsundrið í austri þar sem fólk fór hlægjandi og syngjandi til vinnu og allir unnu að hag heildarinnar.

Allir vissu að þetta var lýgi og að fólk var hneppt í þrældóm hagkerfis sem engu skilaði nema bílífi forystunnar og vopnum, almenningur var eins og gráar vofur sem annað hvort var í fangelsi eða átti varla til hníf né skeiðar.

Falsaðar tölur um hagvöxt og hátt atvinnu- og framleiðslustig voru dásamaðar af þessum flokkum í vestrinu og það þrátt fyrir að kommunistaleiðtogar í vestur Evrópu vissu hvernig ástandið var.

Nú eru margir þessara manna komnir í Sosíallistaflokka og Samfylkingar sinna landa og gera það sem þeir kunna best að leiða lýðinn áfram á asnaeyrunum með hálf eða heilum lygum.

Sveinn Úlfarsson (IP-tala skráð) 3.11.2010 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband