Seinheppni, týndir pappírar og leyndarmál

Seinheppni þessar vesælu ríkisstjórnar er engu lagi lík.  Við upphaf hennar vantaði ekki fagurgalann um opna og gagnsæja stjórnsýslu og að allt skyldi vera uppi á borðum.  Síðan þá hefur hefur hún pukrast með öll mál og allar upplýsingar hefur þurft að draga út úr henni með töngum og samt koma upplýsingarnar eingöngu í smáskömmtum, þannig að langan tíma tekur að fá almennilega heildarmynd af því sem hún er að aðhafast.

Nú er nýjast, að embættismenn hafi raðað skjölum í vitlausa bunka og þess vegna hafi láðst að upplýsa þingmenn um ýmsa þætti Icesave skulda Landsbankans.  Ekki eru pappírsraðarar fjármálaráðuneytisins hraðvirkari en svo, að ekki mun takast að greiða úr flækjunni fyrr en á mánudaginn.

Aldrei hefur nokkur ríkisstjórn í landinu verið hulin eins miklum dularhjúp og þessi sem situr nú um stundir.  Þessi leynd er farin að taka á sig ýmsar myndir, t.d. eru skoðanir stjórnarliða á þeim málefnum sem fyrir þinginu liggja, orðnar svo mikið leyndarmál, að þeir láta helst ekki sjá sig í þingsal og þó þeir séu þar, þá taka þeir alls ekki til máls, til þess að ekkert uppgötvist um skoðanir þeirra.  Þetta hefur komið glöggt í ljós við umræður um Icesave.

Þetta er farið að minna á krakka, sem segja hvert við annað:  

Ég skal segja þér leyndó, ef þú lofar að segja það engum.


mbl.is Ekki öll gögn komin fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða óskaplega neikvæðni er þetta. Það er augljóst að stjórnin er að gera það sem hún getur til að upplýsa almenning og auðvitað þingmenn um þetta hræðilega mál.

Það er varla þeim að kenna þó það séu handónýtir embættismenn allt í kringum þau. Þarna var raðað á jötu í gegn um árin vildarvinum Sjálfstæðis og Framsóknar sem jafnvel gera þetta með vilja til að koma einhverju ósætti af stað. Þetta er verið að tala um núna þessa daganna. Ónýta embættismenn!

Svo skaltu alveg láta það vera að tala um dularhjúp þessarar stjórnar. Það er bara heimskulegt því við munum flest eftirspillingarstjórnum fyrri ára.

Ína (IP-tala skráð) 3.7.2009 kl. 16:39

2 identicon

Axel, ég er 100% sammála þínum staðreindarrökum!

Hvar endar þessi veruleikafyrring???

anna (IP-tala skráð) 3.7.2009 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband