Stærð Baugs í Bretlandi.

Einhversstaðar kom fram hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni að hjá Baugi í Bretlandi ynnu um 20 þúsund manns og honum væri umhugað um að þessir starfsmenn fyrirtækisins héldu vinnu sinni.  Ekki er nú víst að þeir yrðu allir atvinnulausir, þótt eignarhald á búðunum breyttist eitthvað.

Íbúar Bretlandseyja eru um það bil 61 milljón, þannig að starfmenn Baugs eru um 0,33% af fólksfjöldanum.  Það jafngildir tæpum ellefuhundruð íslendingum miðað við fólksfjöldann.

Vegna ævintýramennsku útrásarvíkingsins Jóns Ásgeirs og félaga eru nú fjórtánþúsun íslendingar atvinnulausir.


mbl.is Krefjast upplýsinga um Baug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Flosi Kristjánsson

... og gleymum því ekki að Landsbanki Íslands og Glitnir eru núna ríkisbankar, máttfarnir ríkisbankar. Starfssvið þeirra er væntanlega á Íslandi, þjónusta við íslenskt atvinnulíf.

Þeir atvinnurekendur sem vilja starfrækja fyrirtæki í öðrum löndum á Evrópska efnahagssvæðinu, og geta það, vegna aukins frjálsræðis eftir gildistöku samnings þar um 1994, hljóta að freista þess í fyrstu atrennu að leita liðveislu þarlendra fjármálastofnana.

Flosi Kristjánsson, 5.2.2009 kl. 11:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband