Leggja "græðarar" nám sitt að jöfnu við háskólanám?

"Græðarar" leggja nú í mikla herferð, með dyggri aðstoð Ólínar Þorvarðardóttur þingmanns, til að fá starfsemi sína niðurgreidda úr ríkissjóði og reyna að telja þingheimi og almenningi trú um að störf þeirra jafnist á við það besta úr heimi læknavísindanna, þó ekki geti þeir bent á neinar rannsóknir því til staðfestingar.

Til þess að fá fullgildingu félags "græðara" þarf t.d."höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari" að sækja níu helgarnámskeið árlega í þrjú ár og telst þá að mati sjálfs sín og félagsins fullfær um að "græða" sjálfan sig og aðra, hvort sem þeir eru tengdir eða ótengdir viðkomandi fjölskylduböndum.

Þessi helgarnámskeið virðast "græðarar" leggja að jöfnu við margra ára háskólanám í sálfræði, tannlækningum eða skurðlækningum og heimta á þeim grundvelli jafnstöðu við læknavísindin hvað aðkomu sjúkratrygginga varðar.

Ekki rifjast upp af þessu tilefni að t.d. Ólína Þorvarðardóttir hafi nokkurn tíma lagt til auknar niðurgreiðslur tannlækninga, hvorki barna né fullorðinna, eða að þjónusta sálfræðinga verði talin hluti hins niðurgreidda heilbrigðiskerfis.

Tillöguflutningur þessi á Alþingi um "græðara" hlýtur teljast með botnfalli undarlegra þingályktunartillagna sem fram hafa komið frá stofnun lýðveldisins.


mbl.is Hefur enga virkni umfram lyfleysu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hjátrú blönduð með heimsku er það sem þetta er. Ólína og þeir sem eru að spá í þessari vitleysu verða að fara af alþingi, það er klárt að þetta fólk má alls ekki kjósa aftur

DoctorE (IP-tala skráð) 7.12.2012 kl. 13:20

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég er innilega sammála þér, Axel Jóhann. Þarna eru Ólína og meðflutningmenn hennar sennilega að seilast eftir atkvæðum fólks úr þessum kreðsum og þessarar trúar/hjátrúar (þótt stundum sé eitthvað til í þessu) og gera það með því að seilast um leið eftir stórfé úr vösum skattborgara, en á sama tíma láta þessir þingmenn það viðgangast, að St Jósefsspítali í Hafnarfirði er LOKAÐUR og gagnslaus gerður og mörgum sjúkradeildum víðar verið lokað, en biðlistar sjúklinga lengjast, lækningatæki sárvantar og heilbrigðisstéttir flýja landið.

Blindni hinna ábyrðarlausu þingmanna gagnvart þessu fylgir svo jafnframt ótrúleg bjálfabjartsýni á, að hægt sé að byrja á því alveg á næstunni að ausa milljarðatugum eða -hundruðum í "nýjan Landspítala"!

Jón Valur Jensson, 8.12.2012 kl. 02:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband