Hverjir hafa fjárfestingagetu upp á 500 milljónir?

Smáralindin er nú auglýst til sölu, en eignarhaldsfélag hennar er eitt af þeim fyrirtækjum sem bankarnir hafa þurft að taka upp í skuldir útrásarvíkinganna, en ekki eitt einasta af fyrirtækjum þeirra snillinga virðist hafa gengið hjá þeim í rekstri, enda blóðmjólkuð af öllu eigin fé, í formi arðgreiðslna til skúrkanna sjálfra.

Í fréttinni kemur fram að:  "Söluferlið hófst 28. apríl 2010 og er opið öllum áhugasömum fjárfestum, sem standast hæfismat og sýnt geta fram á fjárfestingargetu umfram 500 milljónir króna."  Ekki er víst að margur maðurinn á Íslandi nú til dags hafi fjárfestingargetu umfram 500 milljónir króna nema útrásarglæponarnir, sem hljóta að eiga einhversstaðar einhverja aura afgangs af öllum þeim milljörðum króna, sem þeir skömmtuðu sér í arð í "gróðærinu".

Jón Geral Sullenberg skrifar opið bréf til Jóns Ásgeirs í Bónusi í Mongunblaðinu í morgun þar sem hann biður hann að útskýra hvað hafi orðið um allan þann arð, sem hann og fjölskylda hans greiddi sér út út gjaldþrota fyrirtækjum sínum, alveg fram á síðustu dagana fyrir bankahrun og eins hvernig þotur, snekkjur, skíðahallir og lúxusíbúðir upp á milljaða króna var fjármagnað.  Svar frá Bónusdrengnum hlýtur að birtast á sama stað fljótlega.

Nú er að sjá hvort Smáralindin verður keypt fyrir Tortola- eða Luxemborgarpeninga, nema mjög stór hópur annarra en útrásarglæpamanna taki sig til og safni saman 500 - 1000 milljörðum til að leggja í púkkið.


mbl.is Smáralind til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Það er fullt af fólki sem á nóg af peningum ennþá  

Guðborg Eyjólfsdóttir, 28.4.2010 kl. 12:08

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Einstaklingar sem lúra á svon upphæðum, sem ekki væru komnir frá banka- og útrásarævintýrinu, eru varla mjög margir, en þó bara vonandi sem flestir.  Aðalatriðið er að þeir fáist þá til að nota þessa peninga til þess að endurreisa atvinnulífið og koma hlutunum á góðan skrið á ný til þess að minnka atvinnuleysið og auka veltuna í þjóðfélaginu.

Eins og ástandið er núna, virðist enginn þora að gera neitt og á meðan ríkir bara stöðnun og jafnvel afturför, því ekki hefur skattahækkunarbrjálæði ríkisstjórnarinnar bætt úr skák.

Axel Jóhann Axelsson, 28.4.2010 kl. 13:05

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta eru kolrangar hæfniskröfur. Í stað þess að væntanlegir kaupendur sýni fram á að þeir geti reddað hálfum milljarði, ætti frekar að gera kröfu um að þeir sýni fram á mikla hæfni og/eða reynslu í skuldastýringu og fjárhagslegri endurskipulagningu. Vegna þess að Smáralindin er veðsett langt út á bílastæði!

Guðmundur Ásgeirsson, 28.4.2010 kl. 16:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband