Grafalvarlegt ástand í atvinnumálum

Samkvæmt könnun Samtaka atvinnulífsins meðal aðildarfyrirtækja sinna eru horfur á að störfum í þjóðfélaginu muni fækka um 1.500 á þessu ári og mun þá atvinnuleysi verða komið upp í um 10% við næstu áramót.

Þrátt fyrir mikinn fagurgala stjórnvalda um að "margt hafi verið gert" til að fá hjólin til að snúast í atvinnulífinu, er þetta það sem við blasir, þ.e. að atvinnuleysi mun aukast og hátt í 20.000 manns munu verða á atvinnuleysisskrá og til viðbótar hafa nokkur þúsund manns flutt af landi brott og því mælast raunverulega töpuð störf mun færri vegna þess.

Í fréttatilkynningu SA kemur m.a. þetta fram:  "Yfirfært á atvinnulífið í heild samsvarar þessi niðurstaða fækkun um rúmlega 1.500 starfsmenn í þessum atvinnugreinum á árinu. Launagreiðslur sem falla brott af þeim sökum nema um 8 milljörðum króna á ársgrundvelli, segir á vef SA."  Jafnframt mun þetta viðbótaratvinnuleysi kosta Atvinnuleysistryggingarsjóð a.m.k. 250 milljónir króna á mánuði, en heildartap launþeganna mun verða hátt í fimmmilljarðar króna á ári.

Þetta er grafalvarleg staða og óskiljanlegt að ríkisstjórnin skuli ennþá tefja og í raun stoppa allar stóriðjuframkvæmdir, sem hugsanlegt er að gætu komist í gang, væri ekki fyrir þessa skemmdarstarfsemi stjórnvalda.


mbl.is Útlit fyrir störfum fækki um 1.500
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Helgason

"Þökk " sé ICESAVE málinu. Hefði þjóðin borið gæfu til að ganga frá þessu ólansmáli í júní á sl. ári-væri hér orðinn uppgangur í atvinnu og efnahagslífinu.   þetta mál heldur okkur í helfrosti eftir NEI hjá hluta þjóðarinnar.  Og engar líkur á að lausn sé í sjónmáli.

Þannig að enn á þetta mál eftir að valda okkur þungum búsifjum.

 En stór hluti þjóðarinnar klappar höfðinu í stein og og segir "helv... ríkisstjórnin"og skilur ekki samhengið....

Sævar Helgason, 15.4.2010 kl. 16:58

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Hvaða samhengi er það við Icesave, að neita að staðfesta skipulagstillögur og tefja öll slík mál með öllum ráðum.  Fjárfestingar erlendra aðila munu ekki stranda á Icesave og nú á endurskoðun AGS á efnahagsáætluninni ekki að stoppa á Icesave lengur. 

Það verður fróðlegt að sjá þann viðsnúning á öllum sviðum, sem sú endurskoðun mun valda, ef marka má orð ráðherranna.

Meira að segja Steingrímur J. er hættur að tala á þessum nótum, sem þú ert nú að gera, svo ykkur aðdáendum hans ætti að vera óhætt að láta af því líka.

Axel Jóhann Axelsson, 15.4.2010 kl. 17:04

3 Smámynd: Sævar Helgason

Samkvæmt nýjustu upplýsingum er þetta ICESAVE mál að leysast -Kannski upplýst eftir kosningar í Hollandi og Bretlandi.  Rannsóknarskýrslan opinberar allt klúður Íslendinga í málinu . ASG endurskoðun aðstoðar við Ísland okkur í vil er skýrt merki um að málið er að leysast.  Því er fagnað.  Forseti vor situr eftir í forarpytti við að þvælast fyrir lausninni og skaða þjóðina...Að hafna samþykkt laganna um ára mót voru stór mistök sem og NEI hluta landsmanna....

Sævar Helgason, 15.4.2010 kl. 19:47

4 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Mér þykir þú góður, að hafa svona miklu betri skilning á málinu en flestir aðrir, t.d. 98% þeirra kjósenda, sem afstöðu tóku í þjóðaratkvæðagreiðslunni.  Hvaða leynisamninga verður upplýst um, eftir kosningar í Bretlandi og Hollandi?  Eru það samningar, sem er verið að leyna fyrir þingi og þjóð? 

Endilega upplýstu fáfróðan almenning um þessi farsælu Icesavemálalok.

Axel Jóhann Axelsson, 15.4.2010 kl. 21:28

5 Smámynd: Gunnar Emil Árnason

Það hlítur að vera erfitt að þessi Sævar

Gunnar Emil Árnason, 15.4.2010 kl. 22:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband