Húmorslaus kóngur og borgarstjóri á sama plani

Svíakóngur er annálaður fyrir sinn þurra og einkennilega húmor, sem öðrum en honum sjálfum er lítt skiljanlegur eða þykir a.m.k. alls ekki  fyndinn af flestum.  Svíar hneykslast nú vegna nýjustu "brandara" hans um að kóngur hyggist bara "loka sjoppunni" og stunda bleyjuskipti á barnabarni sínu  í New York næstu árin.  Ekki þótti heldur sniðugt að hann skyldi segja að líklega flytjist dóttirin til Íslands því þar sé betra að búa en í Svíþjóð.

Íslendingar kannast vel við lélegan húmor einstkra framámanna hérlendis og nærtækast er að benda á borgarstjórann í Reykjavík sem enginn veit hvort meinar það sem hann segir, eða hvort það á að vera fyndið enda með afar furðulegan húmor sem fáum hugnast.

Aðalmunurinn á Svíakóngi og Reykjavíkurborgarstjóranum er þó sá að kóngurinn svarar heimskulegum spurningum með heimskulegri fyndni, en borgarstjórinn svarar skynsamlegum spurningum með aulahætti, enda skilur hann þær sjaldnast. 


mbl.is Svíakonungur harðlega gagnrýndur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hverjir eru heimsku spyrlarnir, sem geta ekki framkallað annað en heimskulega útfærð svör frá Svía-Kóngsa?

Og hverjir eru skynsömu spyrlarnir hans Reykjavíkur-borgarstjóra, sem snúa út úr öllu sem borgarstjóri segir og gerir, vegna þess að hann er úr öðrum flokki en stjórnendur spyrilsins?

Gaf ekki algóður guð öllum skynjun, vit og hæfileika? Eða skammtaði guð bara skynjun, vit og hæfileika til ákveðinna sérvaldra stjórnmálaflokka? Ja, stundum dettur manni í hug að svo mikil sé þröngsýnis-trú sumra.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 6.9.2013 kl. 22:46

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Borgarstjórinn er þröngsýnn sjálfur,gefur út móðgandi ummæli um trú þá sem flestir Íslendingar aðhyllast.Hann geldur ekki líkum líkt,því þessir flestir sína honum umbyrðarlindi.

Helga Kristjánsdóttir, 7.9.2013 kl. 12:58

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

sýna !!

Helga Kristjánsdóttir, 7.9.2013 kl. 16:39

4 identicon

Kóngsi er greinilegra klárari en blaðasnápurinn og það er ekkert við skopskyn hans að athuga. Það er frekar ástæða til að hafa áhyggjur af skopskyni hins almenna Svía ef eitthvað er að marka fréttaflutning.

Samy (IP-tala skráð) 7.9.2013 kl. 20:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband