Svandís reyndi kúganir til viðbótar öðrum lögbrotum

Enn eru að koma fram upplýsingar um staðfastan brotavilja Svandísar Svavarsdóttir, Umhverfisráðherra, gegn íbúum Flóahrepps vegna aðalskipulags hreppsins, sem Svandís neitaði ítrekað að samþykkja, þrátt fyrir algerlega skýra skyldu til þess samkvæmt skipulagslögum.

Nú hefur ráðuneytið sent frá sér tilkynningu vegna málsins, þar sem staðfest er að Svandís hafi reynt að beita sveitarstjórn Flóahrepps kúgunum, en í yfirlýsingu ráðuneytisins segir m.a: "Í ákvörðun umhverfisráðherra frá janúar 2010 um aðalskipulag Flóahrepps kom fram að synja bæri um staðfestingu á þeim hluta aðalskipulagsins sem varðaði Urriðafossvirkjun og kom fram í ákvörðun ráðherra að ráðuneytið myndi staðfesta aðra hluta skipulagsins þegar sveitarstjórn hefði sent skipulagsuppdrætti í samræmi við ákvörðun ráðherra."

Þessi játning lýsir algerlega ótrúlegum hroka ráðherrans og valdnýðslu, því fram kemur að Svandís hafi krafist nýrra skipulagsuppdrátta eftir SÍNUM vilja, en ekki vilja skipulagsyfirvalda hreppsins.  Þessi yfirgangur Svandísar einn og sér ætti að duga til afsagnar hennar úr ráðherraembætti og segi hún ekki af sér þegar í stað, getur Jóhanna Sigurðardóttir ekki annað en vikið henni úr starfi.

Ráðherra sem með einbeittum brotavilja níðist á og reynir að kúga fámennar sveitarstjórnir með ósvífnum lögbrotum til að lúta geðþóttavilja sínum, getur ekki setið áfram í embætti.

Ekkert ríki á skilið að sitja uppi með slíka lögbrjóta í ráðherraembætti.   


mbl.is Var tilbúin til að staðfesta skipulag án virkjunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband