Glæsilegt afrek

Kvennalið Gerplu í hópfimleikum náði þeim stórkostlega árangri að verða Evrópumeistari í íþrótt sinni og er þetta einhver glæsilegasti árangur, sem íslenskt lið hefur náð í hópíþróttum.  Einnig náði landslið stúlkna í fimleikum þriðja sæti í keppni landsliða og er það einnig glæsileg frammistaða.

Oft hefur verið heilmikið tilstand á Keflavíkurflugvelli við heimkomu íslendinga, sem náð hafa góðum árangri á stórum íþróttamótum og að þessu sinni ætti móttökuathöfnin að vera með glæsilegra móti, vegna þessa einstæða árangurs og þeirra geysilega miklu framfara, sem orðið hafa í fimleikum hér á landi á undanförnum árum.

Slíkur árangur næst ekki, nema með þrotlausum æfingum, miklum áhuga og fórnum í þágu íþróttarinnar.  Það er enginn hægðarleikur að komast í fremstu röð í Evrópu, að ekki sé talað um heiminn allan, og slíkum árangri, sem þessum, verður ekki náð, nema með mikilli vinnu og fyrirhöfn,  stúlknanna sjálfra, þjálfaranna, fjölskyldanna og félaganna, sem þær æfa hjá.

Til hamingju stelpur með þennan frábæra árangur.  Til hamingju Ísland, með að eiga svona frábærar stelpur.


mbl.is Forsætisráðherra samfagnar fimleikakonum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Tek undir heils hugar. Og bæti við að mér finnst til skammar sú forgjöf sem knattspyrnan hefur náð á undanförnum áratugum. Fjölmenn íþróttamót þar sem afreksmenn okkar skipa sér í fremstu raðir fá ekki umfjöllun nema eins og til að halda frið og móðga engan mikið.

Árni Gunnarsson, 24.10.2010 kl. 18:20

2 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Frábærar stúlkur og við eigum aldeilis frábært íþróttafólk í mörgum greinum..

Það liggur við að fréttin um að Forsetisráðherra hafi sent þeim skeyti sé stærri en þegar fréttin sjálf kom um EM titilinn..7

Kveðja.. 

Halldór Jóhannsson, 24.10.2010 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband