Icesaveleynimakk í fullum gangi

Viðskiptablaðið heldur því fram, að Bretar og Hollendingar séu búnir að semja nýtt gagntilboð fyrir Íslendinga að leggja fram og láta kúgararnir svo lítið, að lofa að samþykkja sitt eigið "tilboð" svo framarlega sem allir stjórnmálaflokkar á Íslandi samþykki þessa nýjustu fjárkúgunarkröfu.

Í nafni opinna og gagnsærra vinnubragða, þar sem allt er uppi á borðum, harðneitar fjármálaráðuneytið þessum fréttum, en viðurkennir þó að "samræður" séu í gagni á milli aðila, en gefur ekkert upp um hvað þær "samræður" snúast.

Í kosningunum 6. mars s.l. hafnaði þjóðin algerlega öllum fjárkúgunarkröfum Breta og Hollendinga vegna Icesave skulda Landsbankans, enda fáráðlegt að arður af rekstri bankans skuli ganga til eigenda hans á góðæristímum, en skattgreiðendur eigi að taka skellinn, þegar illa fer. 

Eðlilegast væri að benda kúgurunum á að snúa sér að skilanefnd gamla Landsbankans með erindi sitt og hætta að angra íslenska skattgreiðendur með áframhaldandi "samræðum" við útsendara sína í fjármálaráðuneytinu.  


mbl.is Nýtt Icesave-tilboð í undirbúningi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Er ekki nokkurn veginn sama leynimakkið í gangi og þegar Steingrímur var spurður að því í þinginu hvort eitthvað væri að gerast í Ice-s(L)ave-málinu, hann neitaði því en nokkrum dögum seinna kom Svavar Gestson með "samning" upp á vasann??????

Jóhann Elíasson, 16.9.2010 kl. 09:25

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Steingrímur er af sama sauðahúsi og Bjarni Ben sem kemur allt í einu með það núna að ekkert sé að marka stjórnarskránna varðandi Landsdóm.  Það þyrfti að fá ærlega hundahreinsun þarna á alla, því óþrifin smitast jafnóðum innan fjórflokksins.

Sigurður Þórðarson, 16.9.2010 kl. 09:51

3 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Án þess að ég geti fullyrt það, þá finnst mér það ekki ólíklegt, að það tilboð sem Bretar og Hollendingar kalla nú eftir, samkvæmt fréttum, sé eitthvað í líkingu við sameiginlegt samningsmarkmið stjórnar og stjórnarandstöðu, sem lagt var upp með í viðræðunum, milli synjunar forsetans og þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Það samningsmarkmið hljóðaði upp á það að, Bretar og Hollendingar fengju eins mikið og hægt væri úr þrotabúi Landsbankans.  Það sem upp á vantaði myndu þjóðirnar þrjár taka á sig.  Hef í rauninni ekkert annað fyrir mér í því, en að sú upphæð sem falla á á Íslendinga er ca. þrisvar sinnum minni en hún er í lokatilboði Breta og Hollendinga, sem þeir hafa ekki umboð til að gefa afslátt á.  En virðast þó mega slá af, fái þeir tilboð héðan.

Kristinn Karl Brynjarsson, 16.9.2010 kl. 15:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband