Ekkert hefur tekist ennþá

Á flokksráðsfundi VG í kvöld, sagði Steingrímur J. fundarmönnum frá framtíðardraumum sínum, enda hafði hann ekki frá öðru að segja en því, sem hann vonast til að afreka einhvern tíma seinna.

Helsti boðskapur hans til fundarins var eftirfarandi:  "Steingrímur kvaðst þá eiga þá draumsýn að geta í framtíðinni hugsað til baka og sagt „Já það tókst og það vorum við sem gerðum það."

Áður en þessi spaklegu orð féllu hafði hann þó gortað sig af því að atvinnuleysi hefði minnkað, en gleymdi að geta þess að tíu þúsund manns hafi flúið atvinnuleysið og flutt erlendis.  Það er árangur út af fyrir sig, sérstaklega hjá flokki, sem berst gegn hverju einasta atvinnutækifæri sem möguleiki væri á.

Vinir Steingríms í Englandi myndu hvetja hann áfram með því að segja:  "Keep dreaming, pal."


mbl.is „Já það tókst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Ræða Steingríms eflaust bara á pari við fyrri ræður.  Allt er árangur, sem er skömminni skárra, en svörtustu spár. En spurningin, hvort að hann miði við sína bölsýnisspá, er hann flutti þjóðinni, þegar forsetinn, synjaði Icesavelögunum staðfestingar?  Hefði sú spá gengið eftir þá væri evran komin yfir 300 kallinn, verðbólgan í þriggja stafa tölu og atvinnuleysið í 20-25%. 

 Ég bíð samt spenntari eftir niðurstöðum fundarins.  Verður niðurstaðan sú að öllum deilum innan flokksins, verði vísað til miðstjórnar?  Eða fá þau mál sem valda deilum, innan flokksins, ekki náð fyrir augum "umræðustjórum" fundarins?

Kristinn Karl Brynjarsson, 26.6.2010 kl. 00:33

2 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Ekki verðir klofningi og úrsögnum hanns eða þeirra vegna vísað á neiona stjórn,,,, sem ég efast svo um að sé til í þessu skítaræskni af flokki.

Óskar Guðmundsson, 26.6.2010 kl. 00:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband