Bálreiđur Gylfi bregđur brandi

Gylfi Arbjörnsson, formađur Alţýđusambands Íslands, segir allt fara í bál og brand í ţjóđfélaginu setji ríkisstjórnin ekki lög umsvifalaust til ađ afturkalla launahćkkanir sem kjararáđ skammtađi ríkisforstjórum og fleiru hálaunafólki í störfum fyrir ríkisbákniđ.

Kjararáđ segist vera ađ endurmeta laun ţessara ađila međ tilliti til áđur framkominna launahćkkana annarra í ţjóđfélaginu og međ tilliti til ţreytu ţessara starfsmanna ţegar ţeir loksins komast heim til sín algerlega úrvinda í lok vinnudags.

Í hvert sinn sem kjararáđ sendir frá sér nýja úrskurđi byrjar sami söngurinn í forystusauđum stéttarfélaganna, ţ.e. ađ úrskurđirnir séu algerlega úr takti viđ allt sem sé og hafi veriđ ađ gerast á vinnumarkađi undanfarna mánuđi og ár.  Á sama hátt er skýring kjararáđs alltaf sú ađ ráđiđ hafi einmitt veriđ ađ taka miđ af kjarasamningum undanfarinna mánađa ađ teknu tilliti til ţessa eđa hins sem hafi breyst embćttismönnunum í óhag síđan síđasti úrskurđur hafi veriđ kveđinn upp.

Almenningur verđur alltaf jafn bálreiđur og Gylfi og ađrir launţegaforingjar og yfirleitt er erfitt ađ sjá hvorir eru fljótari ađ gleyma öllu saman, slökkva bálin innra međ sér og slíđra brandana.

Núna eru liđnir tveir eđa ţrír dagar frá ţví ađ úrskurđur kjararáđs var kveđinn upp og flestir búnir ađ jafna sig á reiđikastinu og hinir verđa nokkuđ örugglega búnir ađ gleyma öllu saman strax eftir helgina, a.m.k. ef veđriđ helst sćmilegt.


mbl.is Allt fari í bál og brand
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 13. júlí 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband