Ríkisstjórn svikanna

Ríkisstjórnarnefnan, sem nú situr við völd í landinu, illu heilli, er sannkölluð ríkisstjórn svikanna. 

Hún sveik þjóðina með samningnum við Breta og Hollendinga um Icesave skuldir Landsbankans.  Hún sveik þjóðina aftur í sama máli, þegar hún hunsaði lög Alþingis um fyrirvara við þrælasamninginn.

Nú er hún að svíkja samninginn sem hún gerði við aðila vinnumarkaðarins um skatta, niðurskurð ríkisútgjalda, atvinnuuppbyggingu og stöðugleika.  Það er fáheyrt, að taka þurfi upp viðræður við ríkisstjórn, til þess að reyna að fá hana til að standa við sína eigin samninga, sem eru þó ekki nema fjögurra mánaða gamlir. 

Stöðugleikasáttmálinn, eða réttara sagt svik stjórnarinnar á honum, er enn einn naglinn í líkkistu þessarar ríkisstjórnarnefnu, sem með verkleysi sínu og verkkvíða, hefur unnið að því að lengja og dýpka kreppuna, frá því sem annars hefði orðið. 

Því fyrr, sem kistan verður fullsmíðuð, því betra. 


mbl.is Hafa ekkert nálgast niðurstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband