Stjórnin verður varla langlíf

Fyrstu fréttir frá Hollandi eru þær, að þingmenn þarlendir telji fyrirvarana við ríkisábyrgðina óásættanlega og að þeir kalli á nýja samninga.  Formleg viðbrögð stjórnvalda í Hollandi og Bretlandi hafa ekki ennþá komið fram.  Fari svo, að samningar verði teknir upp aftur, er lágmarkskrafa, að alvöru samninganefn verði sett í málið, með alla helstu sérfræðinga á þessu sviði innanborðs og til aðstoðar.  Svavar Gestsson, í umboði Steingríms J., hefur nú þegar sannað óhæfni sína og hefur unnið þjóðinni stórkostlegt ógagn, sem erfitt verður að bakka útúr.

Hvað sem verður um aftsöðu Breta og Hollendinga til ríkisábyrgðarinnar, er ríkisstjórnin svo ósamsæð og sundurlyndið svo mikið í einstökum málum, að vandséð er hvernig hún á að lifa veturinn af.  Framundan er frágangur fjárlaga og og þar með svo gríðarlegur niðurskurður í rekstri ríkisins, sem og nýjar skattahækkanir á einstaklinga, að stjórnarflokkarnir munu varla koma sér saman í þeim efnum, ferkar en í öðrum erfiðum málum.

Steingrímur J. á í erfiðleikum með VG arm Ögmundar í öllum málum og engum þarf að detta í hug að formaður BSRB (í leyfi) verði leiðitamur við niðurskurð ríkisfjármálanna og uppsagnir umbjóðenda sinna í BSRB.

Steingrímur J. sagði í útvarpinu í gær, að framundan væri langur og strangur vetur, sem yrði öllum afar erfiður.

Þetta eru þau huggunarorð, sem eiga að telja kjark og þor í þjóðina.


mbl.is Víki verði fyrirvörum hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband