Lausn á erfiðleikum Steingríms

Steingrímur J. á í miklum erfiðleikum með flokksfélaga sína, þar sem sumir þeirra snúast eins og vindhanar í afstöðunni til frumvarpsins um aðildarumsókn að ESB, eins og reyndar í fleiri málum.  Hálfgerð upplausn er að verða í VG liðinu og stjórnarslitum hótað af hálfu Samfylkingarinnar, ef þingmenn VG sitji ekki og standi eins og Samfylkingarráðherrunum þóknast.

Steingrímur J. reynir að afsaka þennan hringlandahátt sinna manna með því að skiptar skoðanir séu í öllum flokkum, meðal almennings, samtaka atvinnulifsins og verkalýðshreyfingarinnar um aðildarumsóknina.   Þetta er rétt, svo langt sem það nær, en mikill meirihluti þjóðarinnar hefur lýst andstöðu sinni við aðild að ESB í skoðanakönnunum.

Einmitt vegna þessa klofnings um aðildarumsóknina, ættu þingmenn VG og annarra flokka að samþykkja að vísa því í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort þjóðin vildi að gengið yrði til samninga við ESB.  Eftir meðferð ESB þjóðanna á Íslendingum í Icesave málinu eru engar líkur á því að þjóðin myndi samþykkja nokkrar viðræður við ESB um nokkurn akapaðan hlut.

En með þjóðaratkvæðagreiðslu yrði Steingrímjur að minnsta kosti skorinn niður úr snörunni sem hans eigin flokksmenn og Samfylkingin hafa hert að hálsi hans.


mbl.is Erfitt mál fyrir VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband