Lánasöfnun

Þegar Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn var fenginn til aðstoðar við endurreisn efnahagslífsins, var einn aðalkosturinn við það sagður, að lán þeirra og önnur tengd lán væru til þess að styrkja gjaldeyrisvarasjóðinn og þar með myndi krónan styrkjast á ný.  Styrking krónunnar átti að lækka innflutningsverð, lækka erlend lán í krónum talið og nánast eyða verðbólgu. 

Ekkert af þessum markmiðum hefur náðst, enda liggur fyrsti hluti láns AGS óhreyft í Seðlabanka Bandaríkjanna, krónan hefur haldið áfram að falla, lánin hækka, verðlag hækkar og verðbólga helst há.  Ofan á allt þetta knýr AGS seðlabankann til að halda uppi okurstýrivöxtum og af hálfu ríkisins er ekkert gert til að koma atvinnulífinu aftur á færurna, heldur þvert á móti skorið niður í öllum framkvæmdum á vegum ríkissins, en lítið sparað í rekstrinum.

Á morgun mun eiga að skrifa undir lánasamninga við norðulöndin, en þau lán eiga ekki að koma til útborgunar fyrr en við fjórðu endurskoðun AGS á framkvæmd samstarfssamningsins, en fyrsta endurskoðun hans er nú fyrirhuguð í ágúst, en átti að fara fram í febrúar s.l., samkvæmt upphaflegri áætlun.  Með sama áframhaldi mun fjórða endurskoðunin ekki fara fram fyrr en á árinu 2011, þannig að "vores nordiske venner" eru lausir allra mála þangað til, en geta hins vegar gortað af gæsku sinni við sinn minnsta bróður.

Hins vegar má velta fyrir sér, hvaða styrkur er í því að taka lán með háum vöxtum til að láta það liggja inni í banka á lágum vöxtum. 

Það virðist a.m.k. ekki slá neitt á kreppuna svona sjálfkrafa.

 


mbl.is Greiðsla frá IMF í ágúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband