Leynibrandari Össurar

Mikil leynd hefur hvílt yfir drögum að þingsályktunartillögu um umsókn að ESB og formenn stjórnarandstöðunnar látnir sverja eiða að því að segja ekki nokkrum manni frá innihaldi hennar.

Nú hefur hún verið birt og hljóðar svo:  „Alþingi samþykkir að ríkistjórnin leggi inn umsókn um aðild að Evrópusambandinu og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning."

Eftir að búið verður að sækja um aðildina, þá á að fara að huga að samningsmarkmiðum.  Væri ekki nær að setja þau í umræðuna fyrst, til þess að hægt verði að komast að niðurstöðu um hvað á að sækja?  Ætla menn að sækja um aðild og sjá svo til seinna um hvað þeir ætla að tala við ESB.

Það verður að líta á þessa þingsályktunartillögu eins og hvern annan brandara frá Össuri, grínara.


mbl.is ESB-tillagan birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Egill M. Friðriksson

"Eftir að búið verður að sækja um aðildina, þá á að fara að huga að samningsmarkmiðum.  Væri ekki nær að setja þau í umræðuna fyrst, til þess að hægt verði að komast að niðurstöðu um hvað á að sækja?"

Ég skil ekki alveg fullyrðinguna þína. Grundvallarhagsmunir eru settir fram að neðan - Út frá þeim er samið. 

Egill M. Friðriksson, 14.5.2009 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband