Ágúst Ólafur hættir

Það hefur verið vitað lengi að Ágúst Ólafur Ágústsson hefur bara verið varaformaður Samfylkingarinnar (Samfylkingar smáflokka) að nafninu til, væntanlega til að friða einhvern arm í "flokknum". 

Fundurinn í Samfylkingarfélaginu í Reykjavík, sem haldinn var á meðan Ingibjörg Sólrún var á sjúkrahúsi og samþykkti að krefjast stjórnarslita, hefur nú þessi eftirköst fyrir Ágúst Ólaf.

Hann hefur verið eins og heimilishundur hjá Samfylkingunni undanfarin ár, það hefur verið hægt að siga honum í nánast hvaða vitleysu sem er, en þegar hann ætlar að fara að taka sjálfstæðar ákvarðanir í fjarveru húsbóndans, þá er mælininn fullur.

Nú þarf Smáflokkasamfylkingin að fara að huga að nýju heimilisdýri.


mbl.is Ágúst Ólafur hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Hallgrímsson

Þetta er sorglegt þar sem þessi maður er mun viðkunnalegri en Ingibjörg og Össur, þarna þykir mér illa farið með góðann dreng.  Það er alveg merkilegt að það að fylgjast með þessum flokk þá mætti halda að Össur væri varaformaður.  Svona ættu hlutirnir ekki að vera.

Jóhann Hallgrímsson, 27.1.2009 kl. 10:21

2 identicon

Sé eftir Ágústi Ólafi .

En hans tími MUN koma !

Kristín (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 10:54

3 Smámynd: Elfur Logadóttir

Axel óttalegt bull er þetta í þér, Ágúst Ólafur hefur verið virkur sem varaformaður og haft sitt hlutverk innan flokksskipulagsins og sinnt því vel. Fundur Samfylkingafélagsins í Reykjavík hefur ekkert með þetta brotthvarf hans að gera núna.

Elfur Logadóttir, 27.1.2009 kl. 11:44

4 identicon

Elfur, hvernig skýrir þú þá hversvegna hann fór ekki til fundar til GHH og ÞKG með ISG. Hvers vegna fór ÖS með ISG ?? Var ekki verið að ganga framhjá varaformanni flokksins en það hefur verið venja að formenn og varaformenn flokkanna hittast á svona fundum. ÁÓÁ á samúð mína alla og óska ég honum velfarnaðar. Ég mun hinsvegar ekki eyða mínu atkvæði á einræðisfrú samfylkingarinnar. Hugsa að þetta verði til þess að einhverjir detta af atkvæðalistanum þeirra og snúi sér til framsóknar.

Magnús (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 13:02

5 identicon

Já Magnús það er hárréttt athugað.

Samfylkingin hefur með brotthvarfi Ágústar Ólafs engan fulltrúa ungu kynslóðarinnar í forystusveit flokksins. Framsókn hins vegar er nýbúin að kjósa sér formann sem að er fulltrúi okkar.  Mitt atkvæði fer til Sigmundar Davíðs og Framsóknar í næstu kosningum.

Það voru alltaf viss öfl innan Samfylkingarinnar sem að vildu Ágúst aldrei í forystusveit flokksins.  Svo virðist sem að formaðurinn og svili formannsins hafi verið þar á meðal.

Jón H. (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 13:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband