Stjórnarandstaðan stóð alveg undir væntingum!

Undanfarna daga og ekki síst á fyrsta þingdegi eftir ríkisstjórnarmyndun stóð stjórnarandstaðan algerlega undir þeim væntingum sem til hennar voru gerðar, enda voru þær væntingar ekki um annað en lélega frammistöðu og óvandaðan málflutning.

Við umræður um stefnuræðu forsætisráðherra notuðu ýmsir stjórnarandstæðingar gífuryrði um stjórnarþingmenn, ásökuðu þá um svik, lygar og jafnvel glæpi og var öll sú umræða eins og reiknað hafði verið með að stjórnarandstæðingar myndu stunda á þinginu.

Stór og mikil fyrirheit höfðu verið gefin af þessum sömu þingmönnum um ný og breytt vinnubrögð á Alþingi með bættum samskiptum milli flokka og bættri og betri orðræðu úr ræðustóli, meiri samvinnu milli stjórnar og stjórnarandstöðu og ekki síst að vinna að aukinni virðingu þingsins og þingmanna sjálfra.

Eins og við var að búast stóð ekki steinn yfir steini varðandi þessi fögru fyrirheit og strax á fyrsta degi þingsins sýndi stjórnarandstaðan hvaða vinnubrögð hún mun halda sig við á næstu mánuðum og árum.


mbl.is Óli Björn formaður efnahagsnefndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er gott til þess að vita að ég var ekki sá eini sem átti ekki til orð til að lýsa framgöngu "stjórnarandstöðunnar" í umræðunum í gærkvöldi og vissulega gætir ekki bjartsýni um það að umræðan verði mjög málefnaleg á komandi þingi.

Jóhann Elíasson, 25.1.2017 kl. 17:36

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Mjög góð stefnuskrá, gefa Engeyjarættini og vinafólki hennar allar eignir íslenska ríkisins t.d. skólabyggingar, löggustöðina, kirkjur, Alþingishúsið Héraðsdómshúsið, bankana, Landsvirkjun og svo framvegis.

Hverskonar fólk kýs svona ræningja?

Spyr sá sem ekki veit.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 27.1.2017 kl. 04:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband