Aðgát skal höfð..........

Lögreglan hefur lagt gríðarlega vinnu í leitina að Birnu Brjánsdóttur, sem ekkert hefur spurst til í heila viku.  Mennirnir tveir sem grunaðir eru um að hafa átt þátt í hvarfinu þræta hins vegar alfarið fyrir nokkra aðkomu að málinu, þó rannsakendur telji líkur til að svo sé.

Miðað við að leitarsvæðið sem kembt verður í dag, en það nær um suðvesturhorn landsins frá Borgarnesi að Selfossi, er greinilegt að engar haldbærar upplýsingar eru ennþá fyrir hendi um örlög stúlkunnar og hvar hennar væri helst að leita.

Málið hefur snert alla þjóðina djúpt og allir verið reiðubúnir til að gefa þær upplýsingar sem þeir hafa talið að gagni mættu koma, en greinilega eru samt ennþá stór göt í atburðarásinni sem eftir er að fylla í.

Þess ber að gæta að allir teljast saklausir þar til sekt er sönnuð og haldi hinir grunuðu fast við fullyrðingar um sakleysi sitt verða þeir varla dæmdir fyrir manndráp eða morð nema lögreglunni takist að sanna annað með fullkomnum sönnunargögnum. Því miður eru litlar líkur á að stúlkan finnist á lífi héðan af og því verður lögð ofuráhersla á að finna líkið og allt sem bent getur á þann, eða þá, sem ábyrgð bera.

Nokkurð hefur verið um að einstaklingar hafi gengið of langt í fullyrðingum um ýmislegt sem tengist þessu máli og í sumum tilfellum hefur verið um hreinan hugarburð, ágiskanir og hreinar lygasögur að ræða og ber að fordæma allt slíkt, enda engum sæmandi að stunda slíkt.

Í þessu máli, sem öðrum, ber að sýna aðstandendum og öðrum, sem eiga um sárt að binda, hlýhug, virðingu og nærgætni.  Nógu erfitt er að takast á við slíkar hörmungar, þó ekki sé á þær bætt með gróusögum.

 

 


mbl.is Unnið út frá einni tilgátu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Er ekki hægt að koam á miðilsfundi hjá þeim sem að teljast fremstir í þeim málum?

Gætu andarnir hinumegin séð eitthvað meira en jarðneskur almúginn?

Jón Þórhallsson, 21.1.2017 kl. 18:22

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

ERU SJÓMENN EKKI MEÐVITAÐRI EN AÐRIR UM AÐ SJÓRINN TAKI VIÐ ÖLLU !!

Erla Magna Alexandersdóttir, 21.1.2017 kl. 21:52

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Er nokkur ástæða til að vera með getgátur á samfélagsmiðlunum á meðan lögreglan rannsakar málið.  Nokkuð er víst að hún hefur bestu aðferðirnar til þess og ágiskanir úr þessum heimi eða öðrum eru ekki teknar gildar fyrir dómi a.m.k.

Axel Jóhann Axelsson, 22.1.2017 kl. 10:43

4 identicon

Adgat skal hofd.. er oft notad sem thoggunartaeki til ad kaefa umraeduna. 

Maria (IP-tala skráð) 22.1.2017 kl. 12:07

5 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Aðgát skal höfð í nærveru sálar er ekki hugsuð til að þagga niðu umræðu, heldur til að minna á nærgætni, umhyggjusemi og varfærni í samskiptum við fólk sem á í erfiðleikum.

Ágiskanir, að ekki sé minnst á sögusagnir og hreinar lygasögur flokkast ekki undir þá skilgreiningu.

Axel Jóhann Axelsson, 22.1.2017 kl. 12:20

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Miðilsfundir leysa að mínu mati ekki nein sakamál.

En til eru vitringar sem kunna hlutnæmni.

Þá fær vel þjálfaður og traustsins verður sjáandi persónulegan hlut frá þeim sem leitað er að. Ef ég kynni þessi vandmeðförnu fræði þá myndi ég bjóða fram mína krafta. En því miður kann ég ekki þessi fræði svo vel að ég geti tekið ábyrgð á þeim í glæparannsóknum.

Það er gífurlega mikilvægt að einungis heiðarlegir og vel þjálfaðir einstaklingar taki að sér hlutskyggni-hlutverk. Ég hef sannarlegar upplifanir af hlutskyggni, en ég hef ekki þjálfaða hæfileika til að stunda slíkt.

Vandaðir, heiðarlegir og vel þjálfaðir hæfileikar eru algjört skilyrði fyrir slíkum marktækum tveggja vídda miðlunar-verkum.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 23.1.2017 kl. 02:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband