Var Luis Suárez nokkuð að hugsa?

Spurt er hvað fótboltasnillingurinn Suárez hafi verið að hugsa þegar hann beit ítalska varnarmanninn í öxlina á HM í Brasilíu.  Afar líklegt er að hann hafi alls ekki verið að hugsa nokkuð þegar þetta gerðist, heldur hafi hann þvert á móti verið viti sínu fjær og sjálfsagt varla vitað hvað hann var að gera.

Allir sem fylgjast með HM, sem er stór hluti jarðarbúa,  eru algerlega agndofa yfir þessu atviki og fjölmiðlar og ekki síður netmiðlar loga vegna þessa og öll umfjöllunin snýst að sjálfsögðu um að fordæma atvikið, enda ekki í fyrsta sinn sem Suárez bítur andstæðing á vellinum, heldur a.m.k. í það þriðja og líkur færðar að því að oftar hafi verið reynt án þess að takast.

Suárez gengur greinilega ekki heill til skógar, andlega, því hann virðist hreinlega ekki ráða við skap sitt og gerðir ef eitthvað bjátar á eða er honum mótdrægt, því fæstir skapmiklir menn eru ofbeldismenn sem berja þá sem þeir reiðast hverju  sinni  og hvað þá að þeir bíti mótherja sína í fótbolta hvað eftir annað.

Suárez verður örugglega dæmdur í langt keppnisbann, vonandi bæði frá landsleikjum og leikjum með félagsliðum, enda þarf hann að leita sér lækninga við sínum andlegu veikindum og hefur ekkert inni á fótboltavelli að gera á meðan.

Við umfjöllun um þennan atburð verður að hafa í huga að hér er greinilega um sjúkling að ræða en ekki illmenni. 


mbl.is Hvað var Luis Suárez að hugsa?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Sögur herma að Suárez hafi haft augastað á öxl Chiellini í langan tíma ekki bara í þessum umdeilda leik.

En hvernig þessir rúmormangarar vita þetta, var ekki útskýrt.

Auðvitað á Suárez að fara í 50 ára bann frá knattspyrnu, því þetta er ekki í firsta skiptið sem Suárez bítur frá sér á knattspyrnuvellinum.

Kveðja frá Seltjarnarnesinu

Jóhann Kristinsson, 26.6.2014 kl. 11:56

2 identicon

Sólatækling í hnéhæð

olbogaskot í andlitið

allt mun verra fyrir þann sem verður fyrir því

en þetta nart hjá honum Suarez 

Grímur (IP-tala skráð) 26.6.2014 kl. 20:06

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Dómur fallin og refsingin fjögurra mánaða bann og tólf milljóna króna sekt. Það er ágætt, svo langt sem það nær, en vandamálið verður áfram fyrir hendi fari hann ekki í læknisfræðilega meðferð til upprætingar á því.

Axel Jóhann Axelsson, 26.6.2014 kl. 21:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband