Prófkjör í skugga skipulagsslysa

Dræm þátttaka, á mælikvarða Sjálfstæðisflokksins, í prófkjörinu fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík endurspeglar óænægju kjósenda flokksins með linkulega stjórnarandstöðu síðastliðin fjögur ár og að mörgum finnst hreina þjónkun við skipulagsrugl meirihluta Besta flokksins og Samfylkingarinnar, sem sífellt tekur á sig skelfilegri mynd í hugum borgarbúa.

Hvert ruglið hefur rekið annað í skipulagsmálum borgarinnar og nægir að benda á Hofsvallagötu og Borgartún sem dæmi um fáránleikann sem ríkir í hugsun umferðarmálanna, flugvallarmálið, bílastæðalausa þéttingu byggðar í miðborginni og nágrenni og fyirhugað hótel gegnt Alþingishúsinu með tilheyrandi viðbótarumferð og öryggisleysi fyrir þinghúsið og þingmenn sjálfa.

Borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna tókst ekki að koma sjónarmiðum sínum nægilega vel á framfæri við borgarbúa í þeim málaflokkum sem hann var á öndverðum meiði við meirihlutann, enda hefur fólki fundist að flokkurinn hafi nánast verið teymdur á foraðið af snældurugluðum viðhorfum meirihlutans.

Með kjöri Halldórs Halldórssonar sem leiðtoga borgarstjórnarflokksins í komandi kosningum tekst vonandi að móta skarpa stefnu flokksins í borgarmálunum og sýna fram á sérstöðu hans og yfirburði yfir þann leikara- og kjánaskap sem ríkt hefur í stjórnun Reykjavíkurborgar á yfirstandandi kjörtímabili. 


mbl.is Niðurstaðan ekki bindandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Reykjavík hefur aldrei verið vel skipulögð. Reyndar er ég á því að Reykjavík hafi bara ekkert verið skipulögð.

Nema Breiðholtið. En það var líka allt smíðað í einum rykk. Það er skipulagt á mjög útpældan hátt, og það virkaði eins og til var ætlast þegar ég bjó þar, fyrir mörgum mörgum árum.

Ásgrímur Hartmannsson, 18.11.2013 kl. 17:54

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

 Það viðgengst ekkert skipulag her- og öll umferðarskilti bæði innanbæjar og utan eru eins og þau hafi verið hönnuð fyrir leikskóla- fáránlegt !

Erla Magna Alexandersdóttir, 18.11.2013 kl. 19:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband