Ekki batnar ástandið í ESB enn

Enn eykst efnahagssamdrátturinn í ESBríkjunum sem eru slæm tíðindi fyrir Íslendinga, eins og aðra, enda um mikilvægan markað að ræða fyrir útflutningsvörur landsins.

Erfiðleikarnir eru miklir og hafa verið langvarandi, þrátt fyrir að Össur Skarphéðinsson noti hvert tækifæri til að lýsa yfir kreppulokum í Evrópu, enda sé evran töframeðalið sem öllu muni bjarga þar.

Hvað sem veldur þessari niðursveiflu innan ESB er a.m.k. ólíklegt að hægt sé að kenna Geir H. Haarde og íslensku krónunni um hana.

Beðið er eftir nánari útskýringu Össurar á töfum efnahagsbatans sem evran átti að sjá um að yrði afar skjótur og mikill. 


mbl.is Efnahagslægðin dýpkar á evru-svæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þrátt fyrir tíðar ferðir Össurar til Brussel eykst vandi Evruríkjanna, nema það sé ástæða þess hversu illa gengur þarna úti.  Kannski það sé ástæða vanda Evrunnar og krónunnar okkar þ.e. tíðar ferðir Össurar fram og til baka.???   Nærvera hans í Brussel og á Íslandi er ef til vill vandinn.

Tómas Ibsen Halldórsson, 14.2.2013 kl. 15:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband