Sósíalismi andskotans

Svíar státa sig af miklum jöfnuði í landi sínu og íslenskir aðdáendur ríkissósíalisma líta jafnan með mikilli aðdáun til Svíþjóðar og láta sig dreyma um að taka upp sem mest af sænskum reglum á Íslandi.

Þegar upp komst að kokkur nokkur í Svíþjóð hafði tekið upp á því að bjóða upp á betri, hollari og næringarríkari mat en gegnur og gerist í skólum landsins, datt skólayfirvöldum landsins ekki í hug að gera kröfur um úrbætur í skólamötuneytum almennt, heldur kröfðust þess að umræddur kokkur dragi úr gæðum síns matar og kæmi honum niður á sama plan og matur væri á í öðrum skólum.

Yfirvöldin töldu það "ósanngjarnt" að börnum í þessum tiltekna skóla væri boðið upp á betri mat en í öðrum skólum og þá skyldi "jafnað" niðurávið til þess að öll börn gætu borðað álíka "vondan og lélegan" mat dags daglega.

Þetta er ágætt dæmi um það sem kallað hefur verið "sósíalismi andskotans".


mbl.is Þótti bjóða upp á of góðan mat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stefnan skal vera sú að allir skuli hafa það jafn skítt.Ég hef aldrei skilið þessa Svíadýrkun því leiðinlegi þjóð er vandfundinn

Sigurbjörn Kjartansson (IP-tala skráð) 7.10.2012 kl. 21:00

2 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Þetta eru Svíar upp á sitt besta. Þeir hafa ekki lært eða gleymt hvernig bregðast á við svona uppákomum. Þeim hefði alveg eins getað dottið í hug að banna allan skólamat þangað til væri búið að samræma draslmatinn alsstaðar. Þeir eru líka þeir einu sem hafa stolið af ellilaununum mínum og þeir einu geta ekki farið í stríð sökum fábjánaskapar í þjóðfélaginu. 

Eyjólfur Jónsson, 7.10.2012 kl. 22:44

3 identicon

Þetta er alveg hrikalega bjánalegt.  Það sem þeim dettur í hug!

Skúli (IP-tala skráð) 8.10.2012 kl. 00:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband