Stórkostlegt handboltalið

Íslenska handboltalandsliðið hefur sýnt og sannað á Ólimpíuleikunum að það er eitt allra besta landslið heims um þessar mundir og er meira en líklegt til þess að ná á verðlaunapall núna enda jafnvel enn meiri kraftur í liðinu en í Peking fyrir fjórum árum.

Guðmundur Guðmundsson og hans fólk hefur nánast unnið krafaverk með liðið, þó íslenska landsliðið hafi lengi verið í fremstu röð, hefur það aldrei verið betra en einmitt núna.

Þetta er síðasta stórmótið sem Guðmundur verður með liðið og líklega munu einhverjir af elstu leikmönnunum leggja skóna á hilluna fljótlega og sannarlega mun verða erfitt fyrir arftakana að halda þessu merki á lofti í framtíðinni.

Íslendingar mega vera stoltir af þessu frábæra fólki sem að liðinu stendur og auðvitað leikmönnunum sjálfum, hverjum einasta þeirra.


mbl.is Unnu Frakka og vinna riðilinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þetta eru hetjur Íslands.

Sigurður I B Guðmundsson, 4.8.2012 kl. 21:21

2 Smámynd: Jón Óskarsson

Þetta var svo góður leikur og svo virkilega jafngóð lið sem þarna voru að kljást að hrein unun var á að horfa.  Sammála Einar Erni sem lýsti leiknum að þennan leik á að sýna um allan heim, handboltanum til framdráttar og til að vekja athygli á þessari skemmtilegu íþrótt.  

Þjálfara frakka leiddist ekkert þó svo hann tapaði leiknum, því það er hverju liði sæmd að því að tapa svona jöfnum og góðum leik sem leikinn var af mikilli prúðmennsku og virðingu fyrir andstæðingnum á sama tíma og menn gáfu ekkert eftir í baráttunni um að vinna leikinn.  Draumaleikur beggja þjálfara og þarna komu saman lið sem eru bæði þau bestu á heimsmælikvarða.

Jón Óskarsson, 5.8.2012 kl. 00:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband