Stjórnarliðar niðurlægja Alþingi

Í hverju málinu á fætur öðru sýna stjórnarliðar á Alþingi löggjafarstarfinu algera vanvirðingu og niðurlægja sjálfa sig og þingið með því að nenna ekki einu sinni að láta sjá sig í þingsalnum þegar stjórnarfrumvörp eru þar til umræðu.

Stjórnarandstöðuþingmenn mæta vel á þingfundi og ræða kosti og galla þeirra frumvarpa sem fyrir þá eru lögð, en stjórnarþingmennirnir nenna sjaldnast að taka til máls og kveina svo og kvarta yfir því sem þeir kalla málþóf, þegar samviskusamir þingmenn stunda vinnu sína af samviskusemi og ábyrgð.

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar og fylgismenn þeirra á Alþingi ættu að skammast sín og biðja þjóðina afsökunar á framferði sínu.


mbl.is „Ræðum við tóman sal og við hvort annað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Þetta er til háborinnar skammar, Axel Jóhann. Og sýnir algera fyrirlitningu á þjóð og þingi,ég er algerlega sammála þér! Ég sem þjóðfélagsþegn krefst þess að þeir biðji afsökunar. þeir eru jú í vinnu hjá mér og þjóðini!Hvernig er hægt að ættlast til að málin klárist þegar svona er farið að!!!!!!!!!!

Eyjólfur G Svavarsson, 23.5.2012 kl. 10:37

2 identicon

Come on, Axel Jóhann, come on!

Mundir þú nenna að hlusta á rövlið í fasista beljunum, eins og Þráinn Bertelsson orðaði það réttilega?

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 23.5.2012 kl. 12:22

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara svona að benda þér á að stjórnarandstöðuþingmenn eru heldur ekki í salnum. Nema þeir sem eru í pontu.  Kíkti þangað um daginn og þá var salurinn nærri tómur nema að það var þingmaður í pontu. Þetta er mjög algengt enda þeir allir með sjónvörp inn á skrifstofum sínum. Maður heyrði oft í þingmönnum í sjónvarpinu sem komu hlaupandi í ræðupúltið því þeir höfðu gleymt að tékka hvar þeir voru á Exelskjalinu í málþófinu. 

Stjórnarliðar hinsvegar tóku ekki þátt í málþófinu þar sem það var óþarfi að leggja stjórnaranstöðunni lið.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.5.2012 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband