Íslendingar verða að læra að tjá sig við væntanlega herraþjóð

Kínverjar fara víða um lönd og kaupa upp fasteignir, fyrirtæki og landsvæði og láta í þeim viðskiptum eins og þeir séu tilbúnir til að taka þátt í viðskiptum á forsendum þeirra laga og reglna sem í gildi eru í hverju landi fyrir sig.

Þrátt fyrir slík látalæti hika Kínverjar ekki við að flytja tugþúsundir íbúa sinna hreppaflutningum milli landa til að vinna við kínversk fyrirtæki á mun lægri launum en viðgangast í viðskiptalandinu og draga þannig niður kaupgjald og lífsafkomu verkafólks sem fyrir er á þeim svæðum sem þeir "leggja undir sig".

Ekki þarf að fara langt til að staðfesta slíkar undirborganir Kínverjanna því slíkt viðgekkst við byggingu Kárahnjúkavirkjunar og nú hafa Kínverjarnir lagt fram "beiðni" um að fá að flytja þúsundir verkamanna frá Kína til Grænlands til að vinna að framkvæmdum þar og auðvitað á mun lægri launum en kjarasamningar á Grænlandi segja fyrir um.

Hér á landi hafa Kínverjar verið að koma sér fyrir í atvinnulífinu og hægt og hljótt munu þeir verða allsráðandi í þessu dvergríki þar sem íbúafjöldinn er ekki meiri en í meðalstóru kínversku fyrirtæki, en sum þeirra hafa mörg hundruðþúsund starfsmanna í sinni þjónustu.

Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og því þyrftu Íslendingar að drífa í því að taka upp kennslu í kínversku í barnaskólum landsins svo hægt verði fyrir Íslendinga að gera sig skiljanlega við herraþjóðina í framtíðinni.

Ekki verður hægt að reikna með að yfirheyrslur með tilheyrandi pyntingum muni fara fram á íslensku þegar þar að kemur.


mbl.is Fjölskylda Chens barin til óbóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tryggvi Helgason

Þessa innrás Kínverja verður að stöðva. Þessi maður, sem reynir að ná fótfestu á Grímsstöðum á Fjöllum, er enginn venjulegur, frjáls viðskiftamaður, heldur er hann útsendari kínversku kommúnistastjórnarinnar.

Menn verða að hafa það hugfast, að það eru lög í Kína, að öll kínversk fyrirtæki verða að vera í eigu ríkisins, 51 prósent, - þannig að það er kínverska kommúnistastjórnin sem öllu ræður í öllum fyrirtækjum.

Menn hljóta að sjá hversu skelfilegar afleiðingar það hefði í för með sér, fyrir Ísland og íslensku þjóðina, ef kommúnista Kína kæmist hér inn fyrir þröskuldinn, og næði tangarhaldi á íslensku landssvæði.

Þetta verður að stöðva.

Tryggvi Helgason, 18.5.2012 kl. 23:28

2 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég myndi ekki verða hrædd ef Norðmaður, dani, englengingur eða ítali vildi kaupa nokkur prósent af Íslandi og jafnvel amerískur kínamaður!

Hitt er alvarlegt , þegar stjórnmálamenn og konur fara að tala um "kínverja"! sem milljarðamæring? Það er nefnilega EKKI HÆGT I KOMMÚNISTARÍKI! Punktur.

Ekki hjal um rasisma, fyrr en að lesa um Kommúnisma! (maðurinn getur ekki einu sinni átt sitt eigið klóset í Kína, hvað þá Jón Ólafsson margar verksmiðjur).

Kommúnismi leyfir ekki svona hugsun, að einn eigi eitthvað mikið meira en Ríkið Kína.

Ef menn vilja Kína, þá skil ég klappið fyrir peningum Nupo. Kínverji getur ekki verið milljónamæringur, aðeins Kína.

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 19.5.2012 kl. 02:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband