Miðaldaréttarfar í Saudi Arabíu

Það sem af er þessu ári hafa þrjátíuogsjö manns verið hálshöggnir í Saudi Arabíu fyrir ýmsa glæpi, sem dauðarefsing ligur við í landinu.  Dauðarefsing er við lýði allvíða í heiminum ennþá, en óvíða er beitt eins ómannúðlegum aðferðum við framkvæmd hennar eins og í Saudi Arabíu og fleiri löndum múslima. Þar og víðar þekkist einnig að grýta konur til bana, t.d. fyrir framhjáhald og of náin samskipti við karlmenn fyrir hjónaband.

Samkvæmt viðhangandi frétt liggur höfuðmissir við eftirtöldu: "Dauðarefsing liggur við nauðgunum, morðum, trúskiptum, vopnuðum ránum og fíkniefnasmygli samkvæmt sjaríalögum sem gilda í landinu."  Eins og sést af þessari upptalningu er það einn versti glæpur, sem undir sjaríalög falla, að skipta úr múslimatrú yfir í önnur trúarbrögð, t.d. kristni.

Múslimar, víða á vesturlöndum, hafa krafist þess að sjaríalög verði látin gilda í þeirra hverfum og samfélögum, t.d. í stórborgum Evrópu og sumir "víðsýnir" vesturlandabúar taka jafnvel undir það, að sjálfsagt sé að innflytjendur fái að halda í allar sínar hefðir og viðhalda sinni "menningararfleifð".

Kannski má búast við því að sjá "trúvillinga" og aðra glæpamenn hálshöggna á torgum evrópskra borga í framtíðinni.   


mbl.is Þrír hálshöggnir í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Maður óttast aðeins að eftir því sem fjölgar af múslímum í þessum borgum að á endanum verði þær að múslímalöndum. Þ.e. innlimun í önnur trúarbrögð án stríðsátaka.

Ég væri t.d. ekki til í að búa í landi þar sem einn daginn væri skellt á sjaríalögum af því að múslímar væru orðnir fjölmennasti trúarhópurinn í landinu.

Ekki misskilja mig ég hef ekkert á móti útlendingum sem aðlagast samfélaginu, fátt skemmtilegra en að sjá útlendinga tala íslensku og hafa samlagast.

Emil (IP-tala skráð) 30.7.2011 kl. 15:27

2 identicon

Hvernig væri ástandið hér á íslandi ef við værum með biblísk lög, hafið þið spáð í því; Hafið þið spáð í því að kóran er byggður að stórum hluta á biblíu. Það er sami guð, sami hryllingur, sama kvenfyrirlitning, fjöldamorð hægri vinstri; Ættbálkaruglið alveg á fullu. Þetta er ekki eins og ykkur var sagt.. þið vitið; Ó Jesú bróðir besti; Langt frá því.
Ef þið ætlið að segja að gamla testamentið sé hryllingurinn, þá er ekki úr vegi að minna ykkur á að meintur messías tók 100% undir allt það sem stóð í gamla testamentinu, að þar mætti engu breyta, ekki einum staf.

Hver sá sem krefst virðingar við kristni, eða önnur trúarbrögð, krefst þess sama fyrir íslam og visa versa.
Það frelsi sem þið hafi er ekki kristni að þakka, það er því að þakka hversu stóra hluta biblíu við hunsum.

DoctorE (IP-tala skráð) 30.7.2011 kl. 15:51

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Það eru nákvæmlega svona færslur (athugasemd nr. 2) sem sýna hvers vegna alls kyns ómerkingar og rugludallar þora ekki að koma fram undir nafni, aðeins dulnefni eða fölsku nafni.

Skyldu þeir líka ganga um í dularklæðum, þegar þeir hætta sér út undir bert loft á meðal venjulegs fólks?

Axel Jóhann Axelsson, 30.7.2011 kl. 16:26

4 identicon

Hvað meinar þú Axel? Ég sagði bara sannleikann; Að auki, ef þú krefur mig um nafn svo ég verði marktækur, þá skaltu líka krefja þá sem skrifuðu biblíu um nafn; Þeir eru að mestu nafnlausir, sem og meint vitni að meintum kraftaverkum biblíu.

DoctorE (IP-tala skráð) 30.7.2011 kl. 16:35

5 identicon

Verið er að innleiða aftur dauðarefsingar í Evrópu inn um bakdyrnar.

Rétthugsun Réttlæti. (IP-tala skráð) 30.7.2011 kl. 16:50

6 identicon

Ég gæti messað yfir þér úr biblíu allan daginn Axel; Vissir þú að biblían krefst þess að konur sem eru ekki hreinar meyjar á brúðkaupsnótt verði grýttar til dauða, já og óþekkir krakkar, já og konum sem er nauðgað; Mönnum sem safna eldivið á hvíldardegi; Þetta er alveg rosalega rosalegt.
Lestu biblíu vinur, ef það er eitthvað mannlegt í þér þá munt þú fyllast hrylling, sama hrylling og þegar þú lest kóran.

DoctorE (IP-tala skráð) 30.7.2011 kl. 16:52

7 identicon

"DoctorE", þú ert greinilega ruglaðri en "Lyfjasmakkarinn frá Actavis."

Rétthugsun Réttlæti. (IP-tala skráð) 30.7.2011 kl. 17:14

8 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Mér er nákvæmlega sama hvað stendur í bíblíunni og þá ekki síst Gamlatestamentinu. Hvorki lög Íslands, né annarra vesturlanda, eru byggð á Gamlatestamentinu, svo ég sé ekki hvað ruglið í þér, DoctorE, kemur þessu máli við.

Axel Jóhann Axelsson, 30.7.2011 kl. 17:21

9 identicon

Þú talaðir um trúarbrögð, íslam og kristni; Kristnir hamast á því að vesturlönd byggi á kristnum gildum, sem er alls ekki rétt;
Hér á íslandi voru menn einnig drepnir vegna kristni og biblískra laga.

En hey, gott að þú ert ekki kristinn, gott að þú dissar biblíu.

DoctorE (IP-tala skráð) 30.7.2011 kl. 17:34

10 identicon

DoctorE er varla heill í kollinum ef þetta er hans skilningur.  Reglur Gamla Testamentisins gilda ekki í kristni. Kristur felldi allar slíkar refsningar úr gildi sbr. "sá yðar sem syndlaus er kasti fyrstur" DoktorE hefur hvorki andlega heilsu né skilning ef þetta eru virkilega hans skoðanir. Hann þarf að kynna sér mikið betur kristni. Sennilega er varla hægt að koma neinu viti fyrir í hans höfði. Hann minnir á siðblindan öfgamann í færslum sínum. Maður fær hroll.

Einar (IP-tala skráð) 30.7.2011 kl. 22:07

11 identicon

Saudi Arabía borgaði Ýmishúsið þegar siðleysigjarnir keyptu það og engin mótmælir. Hvers vegna? Sér fólk ekki hættuna frá þessum steinaldarmönnum sem vaða uppi á vesturlöndum með frekju og yfirgangi.

DoktorE er það veruleikafirtur að blanda saman fortíð og nútíð að hann er ekki svara verður, en hann verðu að leita sér lækninga og það sem fyrst!

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 30.7.2011 kl. 22:52

12 identicon

http://politisktinkorrekt.info/2011/07/30/muslimska-antisemiter-later-sporthall-bli-tillfallig-moske/#more-95232 Hér má sjá hvernig svíar láta dýrin vaða yfir sig án mótmæla vegna hræðslu við hryðjuverk. Múslimar í Svíþjóð í dag eru aðeins 600.000 og svíar sofa ómeðvitaðir. Því miður.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 30.7.2011 kl. 23:11

13 identicon

http://politisktinkorrekt.info/2011/07/31/presskonferens-om-shariakontrollerade-zoner/#disqus_thread Þetta eru næstu gestir í Ýmishúsinu og það er ekki langt í það.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 31.7.2011 kl. 10:24

14 identicon

Nei nei eru menn að væla yfir mér og hafa ekki lesið biblíu... Gamla testamenntið ekki í gildi; Þetta segja menn bara sem hafa EKKI lesið biblíu; Hann Jesú segir einmitt að GT sé fullkomið orð guðs, að það sé í fullu gildi og þar megi engu breyta.

Nýverið var gerð könnun á þekkingu manna á trúarbrögðum, kristnir koma LANG verst út af öllum. Trúleysingar trónuðu á toppnum yfir þekkingu á trúarbrögðum.

DoctorE (IP-tala skráð) 31.7.2011 kl. 16:28

15 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Það er stundum æði erfitt að tjá sig þegar öfgamenn leggjast eins og sníkjudýr á umræðuna Axel. En mér finnst upphaflega færslan  mjög góð.

Bergljót Gunnarsdóttir, 31.7.2011 kl. 18:21

16 identicon

http://snaphanen.dk/upload/2011/01/Is-2011-5-Hela1.pdf Þetta er framtíðin í Evrópu ef vinstrisinnar í pólutík fá að ráða - samber Össur Sk. Hún ríður ekki við einteyming heimskan í þessu fólki og svo kýs heimskur almenningur yfir sig þetta ógeð.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 1.8.2011 kl. 12:26

17 identicon

er það bara ég sem sé speki Anders Behring Breivik í mikið af þessum ummælum?

haraldur (IP-tala skráð) 1.8.2011 kl. 19:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband