Ótrúleg misnotkun launakerfis ríkisins

Hvað eftir annað er Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, staðin að verki við brot á lögum, lagasniðgöngu, ósannsögli og hylmingu gagna þegar fyrirspurnum er beint til hennar á Alþingi.

Nú síðast gagnrýnir Ríkisendurskoðun hana harðlega fyrir að leyna upplýsingum um greiðslur fyrir "verktakastarfsemi" starfsmanna Félagsvísindadeildar HÍ í þágu ríkisstjórnarinnar, en Guðlaugur Þór Þórðarson hafði ítrekað reynt að pína þessar upplýsingar upp úr Jóhönnu, sem sífellt þverskallaðist við að veita þær.

Afar athyglisvert er að lesa eftirfarandi úr athugasemdum Ríkisendurskoðunar: "Ríkisendurskoðun segir jafnframt að bæta þurfi yfirsýn ráðuneyta um aðkeypta þjónustu og segir að notkun ráðuneyta á launakerfi ríkisins til greiðslu fyrir sérfræðiþjónustu orki tvímælis. Núverandi formleysi geri það að verkum að ekki sé hægt að veita fullnægjandi upplýsingar um óreglubundnar heildargreiðslur til sérfræðinga, þar sem þeir flokkist sem launþegar í bókhaldi ráðuneyta og á grundvelli upplýsingalaga sé ekki hægt að veita upplýsingar um launagreiðslur ráðuneyta til einstakra starfsmanna."

Svona vinnubrögð við að reyna að fela raunverulegar verktakagreiðslur sem launagreiðslur í launakerfi ríkisins gera meira en að orka tvímælis, þær hljóta nánast að flokkast undir bókhalds- og skjalafals í þeim eina tilgangi að fela upplýsingar um greiðslur til verktaka innan um upplýsingar um laun starfsmanna og gera þar með erfiðara að hafa nokkra heildaryfirsýn yfir greiðslurnar, hvorki launagreiðslur né verktakagreiðslur.

Þetta er algerlega óásættanlegar bókhaldsbrellur og tregða Jóhönnu til upplýsingargjafar um þessi mál og önnur aðeins enn ein fjöður í lagabrota- og leyndarhjúpsferil hennar.

Sá ferill ætti fyrir löngu að hafa leitt til afsagnar hennar og reyndar ríkisstjórnarinnar allrar. 


mbl.is Vinnubrögð gagnrýnd harkalega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll; jafnan, Axel Jóhann !

Hví; skyldu núverandi stjórnar glæpaflokkar, vera undan þeirri sök seldir, fremur en þeir,, sem hér ríktu; 1995 - 2007, ágæti drengur ?

Viðbjóður sá; sem íslenzkt samfélag er undirlagt af, fyrir tilverknað stjórnmála hræ ætanna er slíkur, að hlutfallslega, finnum við þess hvergi staðar, í sama mæli, i gjörvallri veröldu - og; er þá afar mikið sagt, Axel Jóhann.

Með ágætum kveðjum; sem áður - og fyrri /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 30.6.2011 kl. 14:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband