"Kjáninn" á Bessastöðum vekur furðu

Uffe Elleman-Jensen og Mogens Lykketoft, fyrrverandi ráðherrar í Danaveldi, furða sig á Ólafi Ragnari Grímssyni fyrir að hann skyldi ekki staðfesta lögin um Icesave III og þannig með kjánaskap sínum taka völdin af Alþingi og grafa þar með undan lýðræðinu í landinu.

Það sem þeir félagar flaska á, er að ÓRG hafði ekkert frumkvæði að því að vísa lögunum til þjóðarinnar, hvorki lögunum um Icesave II né um Icesave III. Það voru kjósendur sjálfir sem kröfðust þess með undirskriftasöfnunum, þar sem meira en fimmti hver kjósandi skráði nafn sitt á áskorun til forsetans að hann sæi til þess að þjóðin sjálf fengi að ráða örlögum málsins.

Í fréttinni er þetta haft eftir þeim félögum: "Lykketoft sagði, að íslenska ríkið vær í mun betri stöðu en til dæmis það gríska eða portúgalska. En hætta væri á að kjáninn í forsetastólnum hefði skemmt fyrir löndum sínum með því að staðfesta ekki lögin.  Elleman-Jensen sagði, að nú spyrðu menn sig út í heimi hvort hægt væri að gera samninga við Íslendinga. Sagði hann, að Ólafur Ragnar hefði í raun tekið lýðræðislega kjörið þing Íslendinga úr sambandi og þannig grafið undan lýðræðinu í Íslandi."

Að vísu hefur "kjáninn í forsetastólnum" haldið því mjög á lofti sjálfur, að lögin hafi farið í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir hans frumkvæði og gumað sig af því víða um lönd, að með því hafi hann verið að efla lýðræðið í landinu, en eins og áður sagði hefur ÓRG aldrei gert nokkurn skapaðan hlut til að efla lýðræðið, en hins vegar hafa allar hans athafnir snúist um að upphefja sjálfan sig, enda hugsar hann fyrst og fremst og nánast eingöngu um eigin hag og vinsældir.

ÓRG var óþreytandi stuðningsmaður útrásarvíkinganna á meðan þeir voru átrúnaðargoð þjóðarinnar og uppskar það að verða óvinsælasti maður þjóðarinnar, þegar ofan af gengjunum var flett og rannsóknir á glæpaverkum þeirra hófust.  Með því að fara að áskorunum hins stóra hluta kjósenda um þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave II tókst honum af sinni alkunnu flærð að afla sér vinsælda á ný og bætti þar um betur með því að fara enn að vilja kjósenda varðandi Icesave III.

Kjánarnir dönsku misskilja greinilega hvers vegna þjóðaratkvæðagreiðslurnar fóru yfirleitt fram.  Það var ekki fyrir frumkvæði "kjánans í forsetastólnum", heldur okkar kjánanna sem sameinuðumst um að safna svo mörgum undirskriftum, að ekki var fram hjá þeirri kröfu gengið.

Seint verður hægt að taka undir að ÓRG sé kjáni, en aðdáun hans á eigin egói og frama er hins vegar fölskvalaus. 


mbl.is Undrandi á forseta Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef þessir menn eru dæmigerðir fulltrúar, þá sýnir það hversu vafasamt fulltrúalýðræði er.

marat (IP-tala skráð) 19.4.2011 kl. 19:37

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Er ekki Jón Baldvin Hannibalsson sammála þeim dönsku?

Sigurður I B Guðmundsson, 19.4.2011 kl. 20:16

3 identicon

Ekki tek eg nú meira mark á þeim Dönsku ESB köllum  !! En eflaust gleðja þessi orð Forsætisráðherra  og hennar heltekna ESB hjarta !!

Ragnhildur H. (IP-tala skráð) 19.4.2011 kl. 22:11

4 Smámynd: Magnús Óskar Ingvarsson

Það sem fyrst og fremst vekur furðu er það að helstu kjánar Danaveldis skuli fjalla með þessum hætti um þjóðhöfðingja annarra ríkja. Það bara staðfestir þá skoðun mína að hvorugur þeirra stígi verulega í vitið.

Magnús Óskar Ingvarsson, 20.4.2011 kl. 17:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband