Óglæsileg framtíðarsýn

Matsfyrirtækið Moody´s varar Bandarísk yfirvöld við því að lánshæfismat Bandaríkjanna verði lækkað, taki þau ekki kröftuglega á hallarekstri landsins, sem hefur farið sívaxandi undanfarin ár og stefnir í 1.500 milljarða dollara á þessu ári.

Mörg af öflugustu hagkerfunum stefna í miklar ógöngur og má, fyrir utan Bandaríkin benda á Evrópu, sem á nú í miklu basli og útlit fyrir að evran hrynji sem gjaldmiðill á næstu misserum og Japan, en matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði í gær lánshæfismat Japana, vegna hallarekstrurs landsins og olli það mikilli lækkun Jensins, sem hefur verið með allra sterkustu gjaldmiðlum undanfarin ár.

Nýti Íslendingar ekki þau tækifæri sem nú bjóðast varðandi erlenda fjárfestingu í atvinnufyrirtækjum á landinu mun þeir missa algerlega af lestinni, því innan skamms tíma verður ekki um neina erlenda fjárfesta að ræða hérlendis, því þeir munu hafa nóg með að halda sjó og verja fjárfestingar sínar frá fyrirséðu verðhruni á næstu árum.

Mestar líkur eru á því að gífurleg fjárhagsleg kreppa muni hrjá veröldina næstu tíu til tuttugu árin og verði gæsirnar ekki gripnar núna, munu þær fljúga frjálsar um langan tíma.


mbl.is Líkur á breyttu mati aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jenið var nú ekki lengi að vinna upp tapið. Þessir 900 milljarðar dollara sem Bandaríkjamenn skulda Japönum ættu nú að duga eitthvað. Það er ótrúlegt að Bandaríkin séu enn með hæstu lánshæfiseinkunn. Skulda mest allra þjóða og gera ekkert til að minnka hallann. Þvert á móti auka þeir hann ár eftir ár.

Í Evrópu er a.m.k. tekið á vandanum. Annars er ekki hægt að leggja of mikið traust á þessi matsfyrirtæki. Ekki eins og þau séu með gott "track record".

Kristján Jónsson (IP-tala skráð) 29.1.2011 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband